þriðjudagur, maí 31, 2005

Á ég að vera stressuð?

Já nú er ég spurð nánast á hverjum degi hvernig brúðkaupsundirbúningur gangi, hvað margir komi, hvað eigi eftir að gera o.s.frv. Ég ælta bara að svara þessu í eitt skipti fyrir öll svo að ég þurfi ekki að endurtaka alltaf sömu hlutina í símann :) SNIÐUG!

- Í veislunni verða ríflega 100 manns af allra þjóða kyni
- Ég er ekki búin að kaupa "kjólinn" enda hef ég ekki ennþá ákveðið í hverju ég ætla að vera. Alma vinkona er langt á undan mér í þeim efnum og er búin að kaupa átfittið fyrir brúðkaupið mitt...já sumir eru tímanlega í því!:-). Ég versla ekki fötin fyrr en vikuna fyrir brúðkaup (þegar ég verð orðin mjó - right) og þá verður hóað saman öllum helstu tískuráðgjöfunum mínum.
-Athöfnin fer vonandi fram úti á túni (ef að vel viðrar) þar sem við verðum gefin saman af Sigurði Grétari presti á Hvammstanga.
-Veislan fer fram í stóru brúðkaupstjaldi (líka úti á túni). Á boðstólnum verður grillkjöt af íslenskum sveitasið, bjór og léttvín og svo að sjálfsögðu brúðkaupsterta, kaffi og konfekt á eftir.
-Að málsverði loknum mun hljómsveitin Feðgarnir leika fyrir dúndrandi dansi eins lengi og fólk stendur ennþá upprétt.
-Veislustjórar verða þau Dóri frændi hans Hadda og Alma vinkona mín. Allir þeir sem ætla sér að vera með einhvers konar Stand-up og kvikindisskap í veislunni þurfa því að hafa samband við þau, annaðhvort í mail eða bara á föstudeginum þegar að fólk kemur á staðinn.

Svona er staðan í bili allavega! Ykkur er frjálst að spyrja mig í svona kommentum hér að neðan og ég skal svara öllu sem vit er í ;)

Knúsur
Hrabbý

mánudagur, maí 30, 2005

Já það eru allir að taka þessi próf...maður verður nú að prófa líka :)







Your #1 Match: ENFP




The Inspirer

You love being around people, and you are deeply committed to your friends.
You are also unconventional, irreverant, and unimpressed by authority and rules.
Incredibly perceptive, you can usually sense if someone has hidden motives.
You use lots of colorful language and expressions. You're qutie the storyteller!

You would make an excellent entrepreneur, politician, or journalist.











Your Birthdate: August 16

Your birth on the 16th day of the month gives a sense of loneliness and generally the desire to work alone.

You are relatively inflexible, and insist on your being independent.

You need a good deal of time to rest and to meditate.



You are introspective and a little stubborn.

Because of this, it may not be easy for you to maintain permanent relationships, but you probably will as you are very much into home and family.

This birth day inclines to interests in the technical, the scientific, and to the religious or the unknown realm of spiritual explorations.



The date gives you a tendency to seek unusual approaches and makes your style seem a little different and unique to those around you.

Your intuition is aided by the day of your birth, but most of your actions are bedded in logic, responsibility, and the rational approach.

You may be emotional, but have a hard time expressing these emotions.

Because of this, there may be some difficulty in giving or receiving affection.




Hvað finnst ykkur um þetta? Ég er nú ekki alveg sammála...en þið þekkið mig nú líka ágætlega! :)






You Are 50% Normal

(Somewhat Normal)









While some of your behavior is quite normal...

Other things you do are downright strange

You've got a little of your freak going on

But you mostly keep your weirdness to yourself


fimmtudagur, maí 26, 2005

Ferðasagan!

Já það er ekki seinna vænna að segja ykkur ferðasöguna úr Hvítasunnuferðinni. Eftir að hafa verið gæsuð tók semsagt við rúmlega 8 tíma ferðalag til Vilmars bróður í Gautaborg. Ég flaug með Iceland Express til Kastrup og tók svo rútu þaðan, sem var um 4 tíma ferð. Það var alls ekki slæmt að ferðast með rútu og maður fékk góðan tíma til að líta í kringum sig, öfundaði nú samt svolítið fólkið í lestunum sem geystust fram úr okkur annars lagið.

Vilmar og Anna tóku á móti mér á stoppistöðinni og fóru með mig heim þar sem þau elduðu handa mér pizzu (mmm). Daginn eftir fórum við í ökuferð norður af Gautaborg, komum við í Nordens Ark, þar sem m.a. er að finna dýr í útrýmingarhættu og fórum svo til Vänersborgar að hitta ættingja Önnu. Fyrst fórum við til Martins (sem var að vinna í sláturhúsinu á Hvammstanga í haust)og Myu kærustunnar hans. Síðan fórum við að heimsækja pabba Önnu og konuna hans og enduðum svo daginn á því að horfa á landsleik í íshokkí heima hjá mömmu hennar Önnu. Það var svolítið sérstök upplifun (svona svipað eins og að horfa á landsleik í handbolta heima). Fólk gjörsamlega gekk af göflunum, fólk sem annars fylgist ekkert með íþróttum. Eftir leikinn keyrðum við svo aftur til Gautaborgar.

Á sunnudeginum fórum við í bæinn. Við fórum í siglingu um síkin og höfnina í Gautaborg, með bát sem heitir Paddan en það var mjög gaman (www.paddan.com). Síðan gengum við um bæinn og nutum þess að slappa aðeins af í sólinni. Að því loknu lá leiðin á byggðarsafnið í Gautaborg þar sem að við skoðuðum mjög skemmtilega sýningu um sögu Gautaborgar. Þar var m.a. að finna víkingaherbergi með brotum úr Hávamálum og Völuspá á veggjunum. Maður varð nú svolítið stoltur af gamla góða Fróni, já já, þjóðremban þandi út á manni brjóstkassan (ekki mátti nú mikið við því). Eftir vel heppnaða menningarferð fórum við aftur heim og þau skötuhjúin elduðu handa mér fyrirtaks svínasteik (maður lifði sko alveg eins og drottning :)). Daginn eftir keyrðum við aðeins um úthverfi Gautaborgar og skoðuðum falleg hús. Síðan fórum við aftur í bæinn, settumst á kaffihús, fórum í bío og síðan út að borða á grískan veitingastað sem heitir Knossos. Það var ótrúlega ljúfur dagur sem endaði með rosalega góðum mat og góðum svefni.

Morguninn eftir vaknaði ég kl. hálf sex að sænskum tíma og Vilmar skutlaði mér á lestina sem fór tuttugu mínútur í 7. Lestina tók ég til Helsingborgar þar sem Åsa mín sótti mig á lestarstöðina og fór með mig heim til mömmu sinnar í morgunmat. Þar stoppaði ég í rúman klukkutíma áður en Åsa skutlaði mér á ferjuna til Helsingör en þaðan tók ég svo lest til Kastrup.

Það var ótrúlega gott að hitta Vilmar og ég sakna hans alveg hræðilega. Það var samt gott að sjá að bæði Önnu og honum líður vel úti. Ég hlakka til að sjá þau bæði í sumar. Takk Vilmar og Anna fyrir að hugsa svona vel um mig :)

Hrabbý skvís

miðvikudagur, maí 18, 2005

Æv bin gússd!!!

Já hún litla Hrafnhildur fór í sakleysi sínu til Reykjavíkur á fimmtudagskvöldið til að hitta Ölmu sína, borða belgískt súkkulaði og horfa á sjónvarpið. Alma náði í mig á flugvöllinn og var að vanda aðeins og sein (lovjú). Þegar við komum í Dvergaborgirnar vinkaði Hrönn fósturmamma okkur úr glugganum í eldhúsinu hjá sér með bleikt blóm í hárinu (sem ég hugsaði nú ekki mikið út í). Þegar ég var á leið upp tröppurnar hjá henni leit ég til baka á bílastæðið og velti fyrir mér afhverju bíllinn hennar tengdamömmu stæði á bílastæðinu. Það fóru nú að renna á mig tvær grímur! Já þið giskuðuð rétt! Íbúðin var full af konum með blóm í hárinu og bleikar neglur sem að voru búnar að ná upp ótrúlega góðum hópeflisanda á stuttum tíma - með það að markmiði að sjálfsögðu að gera mig að eins miklu fífli og mögulega var hægt. Ég var klædd upp í ótrúlega smart dress (bleikar gammósíur, gallapils, bleikan bol, bleikar fjaðrir, bleik sólgleraugu, bleika kórónu, svarta silkihanska og gullskó). Svo var mér afhentur listi með 10 hlutum sem ég varð að klára fyrir kl. 5 morguninn eftir (en þá þurfti ég einmitt að vakna til að taka flug). Listinn samanstóð af eftirfarandi atriðum:

Ég þurfti að:
- Semja ljóð um sjálfa mig
- Reka upp Tarzan öskur á almannafæri
- Syngja 2 lög í karókí þar af eitt með Elvis
- Skilja eftir veggjakrot á kvennaklósetti
- Safna eins mörgum símanúmerum frá karlmönnum og ég mögulega gæti
- Safna eins mörgum kossum frá karlmönnum og ég mögulega gæti
- Dansa upp á 2 borðum
- Vera ofboðslega hreinskilin allt kvöldið
- Stökkva inn í leigubíl og öskra "follow that taxi!!!"
- Læra utan að textann að laginu I will survive (því ég gæti þurft að nota hann)

Með listanum fylgdu eftirfarandi hlutir (í bleikum poka) sem ég þurfti að nota við verkefni kvöldsins:

- Bleikur rafmagnstannbursti
- Typpaklakar
- Tússpenni (fyrir veggjakrot)
- Minnisbók (fyrir símanúmerin)
- Penni
- Sápur

Í pokanum voru einnig svona "eatable panties" frá stelpunum til Hadda.

Svo var borinn fram bleikur kokteill, etið og svo farið í drykkjuleikinn "Never have I ever". Ég mæli eindregið með að fara í svona leik með mömmu sinni þar sem að maður kemst að alveg ótrúlegustu hlutum (sem maður gæti þurft að nota á hana seinna...tíhí).

Eins og listinn gefur sterklega til kynna var aðeins hægt að gera eitt af þessum atriðum heima svo að ég var drifin niður í bæ þar sem að ég átti að leysa restina af atriðunum. Í stuttu máli sagt leysti ég öll verkefnin með miklum sóma!! (auðvitað). Ég söng reyndar ekki í karíókí heldur með Heimi og Magna (Á móti sól) sem voru að troða upp á Sóloni. Eftir að hafa gert upp bókhaldið náði ég að safna númerum og kossum frá 47 karlmönnum (líka Fjölni tattú ;) ) frá 12 þjóðlöndum, þar á meðal voru 2 útúrdrukknir Skotar sem voru allsberir undir kiltunum sínum og vildu ólmir fá að deila með okkur dýrðinni. Reyndar ætluðum við alls ekki að geta losnað við þá aftur (marr so sessí sko). Ég dansaði tæknilega séð ekki á borði heldur tunnu á Dubliners þar sem ég náði að heilla upp úr skónnum 2 Frakka sem sátu til borðs með konunum sínum og drukku öl. Aumingja leigubílsstjórarnir voru bara hálf hræddir við mig held ég...mér fannst það atriði svo fyndið að ég gerði það tvisvar bara til að vera viss ...hehe.

Þrátt fyrir að hafa fengið kvíðahnút í magann í byrjun kvölds var þetta alveg ótrúlega skemmtilegt og ég vil þakka öllum yndislegu vinkonunum mínum, tengdó, svilkonum og öllum bara fyrir að hafa gert þetta kvöld algjörlega ógleymanlegt. Ég vil sérstaklega þakka elsku mömmu minni fyrir að keyra alla leið að norðan til að vera með mér...lovjú mammsa. Þið eruð æðislegar og ég elska ykkur allar. Nú er ég farin að grenja eins og þegar ég gekk inn á fimmtudagskvöldið (snökt). Ég set svo inn myndir um leið og þær berast (o my god).

Ég fyrirgef ykkur það meira að segja að hafa ekki hleypt mér að sofa fyrr en kl. 2 svo að ég náði bara 3 tíma svefni (afvötnun) fyrir ferðalagið út. Ég svaf bara í flugvélinni og fékk mér þynnkuborgara á Kastrup. Var bara hheeevíti góð á eftir enda partýdýr (greinilega miðað við árangurinn kvöldið áður)

Knúsur
Gæsin

fimmtudagur, maí 12, 2005

Jehú!

Reykjavíkurförin heppnaðist mjög vel um síðustu helgi. Við lögðum af stað um hálf fimm og vorum komin í bæinn um hálf eitt leytið. Þá var ég búin að keyra alla leiðina nánast non stop og orðin frekar lúin! Planið tókst hins vegar fullkomlega þar sem að við komum öllum að óvörum og tengdó fékk tár í augun. Á laugardagsmorguninn var ég náttúrulega mætt í búðir um leið og þær opnuðu og straujaði kortin eins og vitlaus manneskja, enda orðin frekar þreytt á að ganga í sömu gallabuxunum nánast upp á hvern dag í 3 mánuði. Aldrei þessu vant fann ég bara slatta af fötum sem ég passaði í og langaði í (ekki algengt). Mér til mikillar ánægju var ég líka búin fara niður um næstum 2 heil númer í gallabuxunum ;) maður fyllist nú bara bjartsýni yfir því að verða ofurbomba í brúðkaupinu! Afrakstur verslunarferðarinnar urðu semsagt gallabuxur, bolur, flauelsjakki og samfella! Nú er ég algjört megabeib......ehhehe...(right). Ég brunaði svo beint til ömmu sem hjálpaði mér að stytta buxurnar þar sem að lappirnar má mér virðast vera óvenju stuttar miðað við ummál mittist (eins og ég hef talað um áður hér á blogginu).
Afmælið byrjaði kl. 17:00 og þá fór fólk að tínast í húsið. Tengdó, frænkur og vinkonur voru búnar að undirbúa rosalega flott smáréttahlaðborð og úti á palli voru fullar hjólbörur af ísköldum bjór (mmmmm). Við Haddi vorum náttúrlega frekar algengir gestir við hjólbörurnar enda komin ansi langt að og ekki hægt að láta neitt fara til spillis ;) Til að gera langa sögu stutta jókst ölvunarstig gestanna að sjálfsögðu jafnt og þétt og í lokin voru bara allra hörðustu svallararnir eftir (þar á meðal við). Við kvöddum síðustu gestina rúmlega hálf fimm um morguninn (jehú!!!). Við vorum bæði alveg steinhissa á hvað okkur gekk ótrúlega vel að djamma svona lengi enda í alls engri þjálfun!! :)
Við lögðum svo af stað austur aftur upp úr hádegi á sunnudag eftir að hafa fengið okkur góðan þynnkumálsverð á Kentucky. Það var svona hálfgerð útlandastemmning að keyra þessa leið því að í bæði skipti sáum við hópa af hreindýrum bíta í vegkantinum og á leið austur aftur sáum við svartan svan í Lóni. Þetta er alveg ótrúlega falleg leið að keyra (semsagt suður fyrir) og ég mæli með henni við alla þá sem eru að hugsa um að sækja okkur heim (úr rvk þ.e.a.s.) ef þeir hafa ekki farið hana nú þegar.
Nú sit ég við skrifborðið mitt (Nönnu) í vinnunni og bíð eftir að klukkan verði fjögur því að ég er nefnilega að fara til ÚTLANDA um helgina. Já ég skal segja ykkur það. Ekki nóg með það heldur er ég að fara að hitta hana Ölmu mína í kvöld eftir 7 mánaða Ölmusvelti. Eins og alltaf þegar maður bíður eftir einhverju líður tíminn ekki neitt og ég er að springa úr óþolinmæði.

Ég tjúna inn með krassandi ferðasögu frá útlöndum í næstu viku :)

Hafið það gott um helgina
Hrabbý van der landkönnuður

föstudagur, maí 06, 2005

Og veturinn kom með kulda og él...

Rosalega er kalt úti núna og búið að vera undanfarna daga. Það var nú guðsmildi að ruslatunnan okkar er bundin niður því í gær flaksaði hún til og frá í rokinu eins og þjóðfáninn á 17. júní. Það er eitthvað svo þjóðlegt að flagga ruslatunnu...alveg einstök lífsreynsla það.
Í gær dáðist ég svo að henni Lísu (samstarfskonu), sem var svo dugleg að vinna í allan gær, að ég bauð henni yfir til mín í kaffi, sletti í pönnsur og hrærði saman brauðrétt úr því sem ég fann í ísskápnum. Svona til gamans endurnýjaði ég kynni mín við Tarotspilin góðu og lagði spá fyrir hana. Lísa varð svo rasandi bit og sagði að mér væri nú alveg óhætt að gera meira af þessu þar sem að ég hafi hitt naglann á höfuðið með allt sem ég bablaði þarna fyrir hana! :) Já maður er nú bara gúru ofan á alla hina snillina sem maður hefur tileinkað sér í gegnum árin! Þetta var allavega mjög skemmtilegt en alveg rosalega orkufrekt líka. Ég er búin að lofa að kíkja í spil fyrir ákveðið fólk sem les alltaf þetta blogg og ég fer alveg að koma mér að því! Spilin eru allavega komin upp úr kassanum og á stofuborðið...það er nú alltaf byrjunin.
Tengdamamma varð fimmtug í gær (tengdapabbi í janúar) og á morgunn á að halda partý aldarinnar þeim til heiðurs. Við erum að reyna að fá gert við bílinn svo að við komumst í bæinn þeim náttúrulega að miklum óvörum. Við erum farin að halda að fólki finnist við búa á hjara veraldar. Allavega svo langt í burtu að því finnst ekki taka því að bjóða okkur í afmæli !!! :) En við erum nú svo léttklikkuð að okkur gæti nú alveg dottið í hug að keyra fram og til baka á sama sólarhringnum, ó sei sei já.
Nú fer hún Alma mín alveg að koma heim frá útlöndum og við náum að hittast í eina kvöldstund. Ég hlakka svaaakalega til enda búin að vera bæði höfuð og handalaus án hennar :) Jæja kannski hef ég einhverjar djúsí partýsögur að segja eftir helgina!

Untill then