Æðisleg helgi!
Síðasta helgi var hreint út sagt æðisleg, en þá fórum við á Franska daga á Fáskrúðsfirði. Við komum á staðinn kl. 19:55 á fimmtudagskvöldi, kl. 20:00 vorum við búin að opna bjórinn og lögð af stað í kenderíisgöngu :) Úr göngunni lá leiðin á Pétanque æfingu á vellinum og síðan á barinn þar sem við vorum leeeengi leeeeeeengi leeeeeeengi og drukkum miiiiikið miiiiikið miiiikið. Á föstudeginum kíktum við á Norðfjörð til Svenna og Hrannar, en þau eru alveg að verða búin að byggja glæsilegt einbýlishús. Við þurftum náttúrulega að gera fagúttekt á húsinu og punkta hjá okkur allt sem hugsanlega gæti gagnast okkur við okkar húsbyggingu. Um miðjan daginn fórum við svo á vígslu nýju slökkvistöðvarinnar. Eftir það fór ég með Óla, Lísu og Sigurrósu á æææðislega tónleika með þeim Kjartani Valdimarssyni,Sigrúnu Eðvaldsdóttur, Bergþóri Pálssyni og Hönsu. Eftir tónleikana lá leiðin í grill til Maju og Denna, svo á brennu og brekkusöng, svo auðvitað aftur á barinn :)!!! Frá barnum lá leiðin í eldhúspartý til Lísu þar sem við sátum og sungum fram eftir nóttu...partýið endaði svo sem skyggnilýsingarfundur (twisted) þar sem við Óli fórum á kostum :). Á laugardaginn slöppuðum við bara vel af...svo vel að við nenntum engan veginn að detta í það þriðja kvöldið í röð, heldur lágum eins og klessur í sófanum hjá Hafdísi frænku, með restinni af liðinu, gúffuðum í okkur grillmat og horfðum á sjónvarpið. Á sunnudaginn lá leiðin svo heim. Við komum endurnærð á sál og líkama heim aftur og hlökkkum roooosalega til að fara aftur austur.