miðvikudagur, nóvember 30, 2005

Flutningar enn og aftur!

Jæja þá er komið á hreint að við erum að flytja ENN OG AFTUR! Nú liggur leiðin aftur heim í heiðardalinn, en mér hefur verið boðin staða framkvæmdarstjóra Selaseturs Íslands og ég þáði hana.

Þetta er náttúrulega tregablandin ánægja því ég kann mjög vel við mig fyrir austan og vinnan mín þar hefur verið skemmtileg. Ég held hins vegar að þetta sé rétt ákvörðun hjá okkur hjónakornunum, við erum bæði sammála um það. Við erum hins vegar harðákveðin í því að fyrir norðan verðum við! Nú er nóg komið af flutningum og róti, nú bara byggjum við okkur hús og förum að huga að framtíðinni. Maður verður víst að þroskast einhvern tímann.

Við flytjum líklegast í febrúar, það fer eftir því hvenær þeir sleppa mér hér fyrir austan. Ég sagði upp í dag, það var mjög skrítin tilfinning..ekki slæm en pottþétt skrítin.

Nú er bara að byrja að pakka pakka pakka og fokking pakka aftur :) JEI!!!

mánudagur, nóvember 28, 2005

Tuttugu metrar á sekúndu og vestan Bolungarvíkuráhlaup

Jæja þá er ég komin aftur heil á húfi úr kúltiveraðri fundarreisu til Varmahlíðar. Á leiðinni norður keyrðum við í 20 m á sekúndu, stórhríð og hálku yfir öll öræfin á meðalhraðanum 70 km/klst. Til Varmahlíðar komumst við samt um 8 leytið um kvöldið þar sem Kiddi bróðir beið eftir mér. Við brunuðum inn á Krók og fengum okkur pizzu, rúntuðum um og löbbuðum aðeins um heimavistina.

Daginn eftir kom mamma svo til Varmahlíðar þar sem að við sátum aðalfund Ferðamálasamtaka Íslands. Fyrr um daginn sat ég svo aðalfund Félags ferðamálafulltrúa, og báðir fundirnir voru mjög athyglisverðir. EN! Athyglisverðari voru þó kvöldvaka og kvöldverður fundargesta á föstudagskvöldinu. Þar sleppti fólk gjörsamlega fram af sér beislinu og fór gjörsamlega fram úr sér í skemmtiatriðunum, Vestfirðingarnir fóru algjörlega á kostum með galdramanninn af Ströndum fremstan í flokki (að öllum öðrum ólöstuðum). Já! Þarna var ég UNG KONA Á FRAMABRAUT og virðulegir ferðamálaspekúlentar rúllandi á milli horna fyrir framan mig. Ég upplifði mig mjög kúltiveraða og dannaða í þessum félagsskap (sem er frekar óvenjulegt fyrir mig ). En þetta var nú samt fanta gaman verð ég að viðurkenna! Ég skreið svo loks örþreytt í bólið um kl. 2 og gat ekki beðið eftir að líða út af en NEI NEI. Herbergið mitt var beint fyrir ofan salinn svo að ég hafði hljómsveitina í eyrunum þangað til hún hætti að spila um 3 leytið. Þegar síðustu tónarnir dóu út lagðist ég andvarpandi á koddann og beið eftir að svefninn dytti á en NEI NEI þá hóf starfsfólkið að undirbúa morgunverðinn með því að draga húsgöng til og frá í salnum með miklum látum. Þessi seremónía tók örugglega liðlega klukkutíma, þá var klukkan orðin 4 og Hrafnhildur litla ekki ennþá sofnuð. Þegar húsgagnabramboltið þagnaði var ég alveg að líða út af þegar að HEEEEEEEEEEEIIIMS UUUUUM BÓÓÓÓÓÓL HEEEEEEEEEELG EEEEEEEEEEERUUUU JÓÓÓÓÓL hljómaði í undarlegum fimmundasöng, aftur og aftur á hótelganginum. Þarna voru mættir Bolvíkingarnir óstöðvandi sem voru sko alls ekki hættir að djamma. Eftir 20 endurtekningar missti ég þolinmæðina, reif mig í fötin og ætlaði að æða út og slá þá flata með skónum mínum þegar að þeir loksins þögnuðu. AHHHHHHHH......ég lognaðist út af og sofnaði svefni hinna réttlátu.

Klukkan 10 morguninn eftir var svo haldið af stað í skoðunarferð um Skagafjörð. Fundargestir voru í MJÖG misjöfnu ástandi og margir hverjir víluðu ekki fyrir sér að fá sér svona eins og 1, 2, 3, 4 afréttara á hinum ýmsu stoppistöðvum, svona rétt til að bjarga deginum. Mér leist hins vegar ekkert á það þegar þeir hinir sömu settust svo undir stýri á bílunum sínum þegar að heim var komið og keyrðu í burtu.

Ég og ferðafélagar mínir komumst heil heim á laugardagskvöldið, alveg búin á því. Haddi hellisbúinn minn var búinn að veiða 2 mýs á meðan að ég var í burtu og ég hef ekki heyrt músatrítl frá því að ég kom heim. Við skulum krossa putta og vona það besta. Hrós dagsins fá Bolvíkingar fyrir óþrjótandi skemmtanagleði og hreina og klára geðveilu 

fimmtudagur, nóvember 24, 2005

Bloggedí blogg

Bloggedí blogg og bloggedí blogg.....

Af okkur er helst að frétta að enn hefur aukist fjöldi íbúa á Reynistað. Á föstudaginn vorum við hjónin komin upp í rúm og alveg að svífa inn í draumalandið þegar að ég heyri grunsamleg hljóð úr loftinu.....tipl tipl tipl....hlaup hlaup hlaup...bang...rúll..rúll...bang...tipl tipl (erfitt að lýsa hljóðum með orðum :) )!Eftir mikla umhugsun og vísindalega hljóðgreiningu úr hjónarúminu komumst við að þeirri niðurstöðu að innrásin væri hafin..INNRÁS MÚSANNA! Múhahahhahaha!Múhahahhah! ehemmm.....

Næsta morgun fundum við músaskít í flestum herbergjum á efri hæð hússins. Eftir að hafa litið í hundadallinn komumst við að því að rúllhljóðið mætti rekja til þess að mýsnar stælu einum og einum bita af þurrfóðri og rúlluðu honum niður í whereevertheycomefrom..sniðugar þessar mýslur



Nú voru góð ráð dýr..what to do ohhhh what to do???? Við áttum náttúrulega engar músagildrur, músafælur eða annað slíkt svo ég lagðist á samstarfsfólk mitt sem brast undan þunganum og lánaði mér bæði fælu og gildru. Gildran var spennt í fyrsta skipti í gærkvöldi og í morgun lá fyrsta músin í valnum. Við vorum náttúrulega voðalega hamingjusöm með að meindýrinu væri náð EN...þegar að Haddi var farinn í vinnuna og ég lá ein í rúminu heyrðist það aftur .....tipl tipl tipl....hlaup hlaup hlaup...bang...rúll..rúll...bang...tipl tipl ...OHHH MAAAAAN!

Þannig að nú þurfum við að vígbúast fyrir alvöru og alveg ljóst að leiðin liggur í Byggt og flutt að kaupa fleiri músagildrur. Ég er að fara á fund í Varmahlíð í dag og fram á laugardag þannig að barberinn Haddi (karlmannlegi veiðimaðurinn minn) fær að reyna á veiðieðlið á meðan að ég er í burtu.

fimmtudagur, nóvember 10, 2005

Árshátíð!





Jæja ég skellti mér á árshátíð um helgina :)Gat náttúrulega ekki hagað mér skikkanlega frekar en fyrri daginn! Myndin segir meira en þúsund orð...hehe.

miðvikudagur, nóvember 09, 2005

Dimmt og kalt

Rosalega er erfitt að fara á fætur á morgnana þessa dagana. Það er svo gott að kúra í myrkrinu og mér finnst virkilega andstyggilegt að rífa mann upp rétt um 7 í niðamyrkri. Hér á Fáskrúðsfirði fer sólin bráðum að hverfa (28. nóvember) og sést ekki aftur fyrr en um miðjan janúar. Úff..ég sé fram á að ganga með ennisljós hverja vökustund til þess að koma í veg fyrir skammdegisþunglyndi. Annars er ég að hugsa um að leggja fram tillögu um að vinnutími á Íslandi fari eftir birtustundum á sólarhring. Svo taka bara allir sumarfrí frá miðjum júní fram í miðjan júlí svona til að sprengja sig ekki. Mér finnst þetta eiginlega bara mjög GÓÐ tillaga og ætla að misnota sambönd mín á sveitarstjórnarskrifstofunni til þess að koma þessu í gegn fyrir sameiningu :) Jahh...að er annað hvort þetta eða bara loka búllunni og fara til útlanda yfir vetrartímann.

Annars held ég að þunglyndið mitt megi kannski svolítið rekja til karlmannsleysis þar sem Haddi minn vinnur daga og nætur á síldarvertíð þessar vikurnar. Svo eru fylgikvillarnir náttúrulega fiskimjölsilmur í bílnum, af þvottinum, í svefnherberginu og svo framvegis, en svona er víst peningalyktin hér fyrir austan og maður verður nú bara að læra að sætta sig við hana :)

Hvolparnir eru búnir að uppgötva raddböndin (gerðist um leið og þeir fóru að heyra). Nú sita þeir í sitthvoru horninu gelta og spangóla á milli þess sem þeir hlaupa á hvorn annan (sjá frekar illa) og slást. Þetta eru greindarskepnur þessir hundar........

mánudagur, nóvember 07, 2005

Afsakið afsakið!

Elsku aðdáendur :) afskakið þessa löngu bið eftir nýju bloggi, ég er bara búin að vera i einhverri blogglægð..but now I´m back!!

Nú eru hvolparnir orðnir rúmlega 2 vikna gamlir og mamma þeirra vill vera allsstaðar annarsstaðar en hjá þeim. Þeir eru búnir að uppgötva gelt og spangól og láta óspart í sér heyra Åsu greyinu til mikillar mæðu. Ég þurfti að reka hana inn í bæli til þeirra í gærkvöldi eftir að hún var búin að liggja dauðþreytt uppi hjá okkur allan daginn án þess að svo mikið sem lyfta eyrunum þegar að þeir byrjuðu að spangóla eins og sléttuúlfar :) Elsku kerlingin, það er ekkert grín að eiga 5 hávaðabelgi.

Á laugardaginn fór ég á fyrstu og einu árshátíð Austurbyggðar. Prógrammið hófst kl. 17:00 á óvissuferð. Komið var við á Steinasafninu hjá Petru þar sem við fengum brennivín og hákarl og sungun eins og við ættum lífið að leysa. Þaðan lá leiðin svo á Hótel Bláfell á Breiðdalsvík þar árshátíðin fór fram. Þar fengum við frábært villibráðarhlaðborg ... mmmmmmmmm....

Yours trúlí hélt "hátíðarræðu" þar sem ég lét náttúrulega eins og fífl og reyndi skipulega að missa virðingu allra samstarfsfélaganna :) Síðan voru önnur skemmtiatriði og síðan ball. Kvöldið var alveg rosalega skemmtilegt þó að dagurinn eftir hafi kannski verði heldur verri...hehehhemmmmmmmmmmmmmmmmm

Meira seinna
Hrabbý