Nýjustu fréttir
Nú er litla fjölskyldan loksins flutt inn á Árbakka og unir sér mjög vel. Við mæðgurnar og Åsa erum orðnar einsetukonur á virkum dögum þar sem pabbinn er stunginn af til Reykjavíkur í skóla.
Eva Rún dafnar vel og finnst mjög gaman í leikskólanum. Hún er auðvitað búin að vera veik meira og minna frá því að hún byrjaði, en þetta horfir nú allt til betri vegar. Í gær þegar að mamman sótti Evu á leikskólann hitti hún fyrir útklórað barn sem hafði lent í sínum fyrstu slagsmálum við skólasystur...jahérna...hún er 15 mánaða, má þetta?? Ég er farin að undirbúa mig og safna hlífðarklæðnaði fyrir unglingsárin. Hér eru nokkrar myndir af prinsessunni í leikskólanum.



3 Comments:
vá hvað maður er sætur !!! Algjört krútt!
Kveðja Helga E.
Vá, hvað daman er orðin stór! Ég verð að fara muna eftir að stíga á bremsuna og taka beygjuna næst þegar ég keyri fram hjá ykkur á leiðinni norður... :o)
Kossar og knús, Stella Hrönn, viðhengið og afleggjararnir
Æ dúllan, með svipinn frá þér og hárið frá pabba sínum.Til hamingju með að vera flutt inní nýja húsið. Bara til að halda þér upplýstri þá er von á fjölgun hjá okkur um verslunarmannahelgi!
bkv Hrönn og fjölsk. Nesk
Skrifa ummæli
<< Home