Spurt er: Hvað er brekkugarðyrkja?
Hugtakið brekkugarðyrkja hefur í gegnum tíðina hlotið tvenns konar merkingu.
1)Í Vestmannaeyjum lýsir hugtakið athöfn sem á sér stað aðeins einu sinni á ári, þ.e. á sunnudagskvöldi verslunarmannahelgar. Athöfnin fer þannig fram að fjöldi fólks safnast brókalaust saman í brekku einni og snyrtir hvort annað eftir stóðlífi helgarinnar. Hárin eru svo gefin til hárkollugerðar (sjá kollu Dabba kóngs m.a.). Nærvera og söngur Árna Johnsen er til þess gerður að slökkva hverja einustu kynlöngun sem gæti sprottið við verknaðinn.
2)Annarsstaðar í heiminum lýsir hugtakið þeirri athöfn að slá hallandi grasflöt með einhvers konar grasskurðartæki (sjá mynd).

Kveðja,
Dr. B.

3 Comments:
Kæra Dr. B.
Mér skilst að ekki sé hægt að koma spurningum til þín nema hér, enda hef ég beðið í mánuð eftir svari við þessari spurningu: Af hverju er vatnsmelóna ekki ber? Mér mundi líða mun betur ef ég vissi svarið við þessu svo plís plís svaraðu mér fljótt!
Þú ert fyndin Dr.B.
Í anda spuringar Nafnlauss langar mig að vita af hverju tómatur er ekki grænmeti.
Eins brennur á mér að fá útskýringu á fyrirbærinu "Í kjólinn fyrir jólin".
Með von í hjarta og kærleikskveðjum,
Aðalheiður
Skrifa ummæli
<< Home