þriðjudagur, október 21, 2008

Afhverju heitir kleina, kleina?

Þetta er athyglisverð spurning fyrir margar sakir. Sérstaklega þó þá staðreynd að hún varpar ljósi á gífurlegar vinsældir rannóknarlögreglumannsins Harry Klein á meðal íslenskra bænda fyrr á öldum. Ljóst er að Klein hefur lifað mörgum lífum hér á jörð, þar af nokkrum á Íslandi. Dr. B. hefur komist að því að títtnefndur H. Klein var einskonar Messías Íslendinga í kringum aldamótin 1700. Þann 23. september 1674 birtist hann Skúla Tímóteusarsyni amtmanni í Rangárþingi í draumi. Fyrirmæli Klein til Skúla voru að hann skyldi útbúa klippimyndasýningu (leiksýningu) þar sem söguþráðurinn væri þýsk morðráðgáta. Sýninguna skyldi hann svo ferðast með um landið. Í lok draumsins lyfti Klein upp hægðaleifum sínum og beit í. Segir Skúli svo frá að hægðirnar hafi helst líkst undnum, djúpsteiktum deigvafningi. Fól hann móður sinni, Guðrúnu, að hanna uppskrift að sætabrauðinu góða - byggða á teikningu hans sjálfs. Skyldi brauðið heita kleina í höfuðið á Klein sjálfum og færa öllum þeim sem í hana bitu gæfu og gjörvuleika.


Kveðja
Dr. B.

P.S. Dr. B. vill vekja athygli á að í fræðigreinar hans hefur verið vitnað á erlendum bloggsíðum. Sjá nánar hér.

4 Comments:

At 8:55 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Voru Klein og Derrick elskendur eda var thetta meira svona fadir og sonur?

 
At 10:39 f.h., Blogger Hrabbý said...

Derrick fylgdi Klein ekki eftir í fyrri lífum á Íslandi, heldur var hann trúboðsnunna í Boliviu. Í Þýskalandi nútímans voru þeir hins vegar alla tíð elskendur.

Dr. B.

 
At 4:06 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Mér datt einhver snilldar spurning í hug í nótt þegar ég lá andvaka (já, ég veit, klikkuð), en nú bara man ég hana ekki. Skelli henni inn ef hún poppar upp aftur.

 
At 9:14 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Af hverju verda hengirum stundum horug?

 

Skrifa ummæli

<< Home