Spurt er: Afhverju er salt í sjónum?

Svar 1:
Vegna þess að salt er hættulegt fyrir hjartveikt fólk og getur því ekki verið í svo miklu mæli á þurru landi.
Svar 2:
Vegna þess að við söltum poppið okkar svo mikið og pissum þar af leiðandi öllu saltinu í sjóinn.
Svar 3:
Til að saltfiskur hafi einhvern stað til að búa á.
Svar 4 - leiðinlega skýringin
Vegna þess að grunnvatn og yfirborðsvatn leysa upp sölt efnasambönd í jarðvegi og bergi. Þessi efnasambönd renna svo með farvatni til sjávar með þeim afleiðingum að sjórinn er saltur.

3 Comments:
Ég held að það sé skýring númer 3 - engin spurning!!!
Hvernig er það?? Fær fræðsluhornið engar fleiri spurningar?
Doktor Búbblisjöss
AF hverju er ég ég?
Skrifa ummæli
<< Home