þriðjudagur, desember 02, 2008

Afmælisstelpa!

Í dag er Eva Rún Haraldsdóttir hvorki meira né minna en eins árs gömul. Mikið rosalega líður tíminn hratt. Hún er nú farin að nánast hlaupa meðfram öllum borðum og stólum og jafnvel sleppa sér nokkur skref inn á milli. Í gær hljóp hún stofuna á enda án stuðnings. Hún er líka farin að segja öll nauðsynlegustu orðin:

mamma - sem þýðir mamma, bumba, auga og amma allt eftir því hvað hentar hverju sinni

babba - sem þýðir pabbi, nebbi, labba og bra bra

öff - voff

diddi - bangsi, tásur og allt sem á að rétta manni

datt - daTT þýðir bara datt en daaaaahhhhhhhhhhhhhhhhhtt þýðir takk :)

hæææææææææi (hægri... og vinstri líka ef út í það er farið :))

MEEEEE!!!!! - kind

Ahhhhhh - drekka

Hæ! - hæ

Ahhhhhhh.....tt - aaaaa (gott)

Fílahljóð (bwwwwwwwwwww) - fíll

...og ýmislegt fleira skemmtilegt.

Ég lofa að taka myndir um helgina og birta hér í næstu viku.

3 Comments:

At 2:17 e.h., Blogger Unknown said...

ahahahha hún er lika svo mikil rúsina.. mer hlakkar svo til að koma um helgina.. en ja´btw.. til hamingju með snúlluna.. betra er seint en aldrei.. ;) Kv. Kolla frænka..

 
At 5:21 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Tli hamingju með stóra barnið, þú verður búin að ferma áður en þú getur hnerra.

 
At 8:58 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Mér þykir hún aldeilis dugleg að tala eins árs! Kærar kveðjur frá okkur
Hrönn og fjölsk nesk

 

Skrifa ummæli

<< Home