mánudagur, nóvember 07, 2005

Afsakið afsakið!

Elsku aðdáendur :) afskakið þessa löngu bið eftir nýju bloggi, ég er bara búin að vera i einhverri blogglægð..but now I´m back!!

Nú eru hvolparnir orðnir rúmlega 2 vikna gamlir og mamma þeirra vill vera allsstaðar annarsstaðar en hjá þeim. Þeir eru búnir að uppgötva gelt og spangól og láta óspart í sér heyra Åsu greyinu til mikillar mæðu. Ég þurfti að reka hana inn í bæli til þeirra í gærkvöldi eftir að hún var búin að liggja dauðþreytt uppi hjá okkur allan daginn án þess að svo mikið sem lyfta eyrunum þegar að þeir byrjuðu að spangóla eins og sléttuúlfar :) Elsku kerlingin, það er ekkert grín að eiga 5 hávaðabelgi.

Á laugardaginn fór ég á fyrstu og einu árshátíð Austurbyggðar. Prógrammið hófst kl. 17:00 á óvissuferð. Komið var við á Steinasafninu hjá Petru þar sem við fengum brennivín og hákarl og sungun eins og við ættum lífið að leysa. Þaðan lá leiðin svo á Hótel Bláfell á Breiðdalsvík þar árshátíðin fór fram. Þar fengum við frábært villibráðarhlaðborg ... mmmmmmmmm....

Yours trúlí hélt "hátíðarræðu" þar sem ég lét náttúrulega eins og fífl og reyndi skipulega að missa virðingu allra samstarfsfélaganna :) Síðan voru önnur skemmtiatriði og síðan ball. Kvöldið var alveg rosalega skemmtilegt þó að dagurinn eftir hafi kannski verði heldur verri...hehehhemmmmmmmmmmmmmmmmm

Meira seinna
Hrabbý

1 Comments:

At 3:14 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

það er gott að heyra að þú er ekki farin af landi brott.Eg var alveg að missia mig.í alvöru.Þar sem þu er nú orðin amma áttu að veita stuðning og heimilishjálp það væri nú ekki verra.

 

Skrifa ummæli

<< Home