mánudagur, september 12, 2005

Gærdagurinn var alveg brilliant! Við hjónakornin skutumst á Norðfjörð í heimsókn til Hrannar og Svenna. Þar fórum við í siglingu í Hellisfjörð og Viðfjörð. Haddi minn hinn sjóveiki varð hins vegar eftir í landi og beið eftir mér á bryggjupollanum eins og Lína forðum. Í mynni Hellisfjarðar afhenti Svenni mér stýrið og sagði að ég mætti sigla inn fjörðinn. Maðurinn var augljóslega með óráði en ég ákvað að notfæra mér aðstöðuna og taka aðeins í græjuna. Ég sigldi náttúrulega eins og sannur atvinnumaður og tókst að halda bæði mér og öðrum í bátnum. Þetta var alveg ótrúlega gaman og litli sjóarinn í hjartanu mínu æpti af fögnuði.
Við fórum svo í land í Hellisfirði þar sem gestgjafarnir slepptu mér lausri til að taka myndir af herlegheitunum, en þar var eitt sinn hvalveiðistöð. Það var mjög sérstakt að koma þangað sem engir vegir liggja og minjarnar um gamla verkhætti eru ennþá mjög augljósar. Ég náttúrulega missti mig algjörlega í myndatökunni og hvarf af og til í grasið þegar ég henti mér á magann til að ná betri myndum. Þau Hrönn og Svenni hafa sjálfsagt haldið að ég væri stórbiluð..ef þau vissu það ekki fyrir þ.e.a.s.. Eftir stutt stopp héldum við svo í Viðfjörð þar sem gestgjafarnir reyndu að hræða úr mér líftóruna með draugasögum, en fjörðurinn er þekktur fyrir alræmdan draugagang. Ég varð nú ekki mikið vör við draugana en verð þó að viðurkenna að ég fékk létta gæsahúð niður hrygginn þegar að við sigldum inn. Það var eitthvað skrítið þarna í loftinu. Þarna út með firðinum standa ennþá reisulegir bæir sem nú eru notaðir sem sumardvalarstaðir. Einhverra hluta vegna mistókust allar myndir sem ég tók í Viðfirði, hvort það voru draugarnir eða eitthvað annað skal ég ekki segja en siglingin var frábær og ég skemmti mér ótrúlega vel. Eftir vel heppnaða ferð fórum við svo heim til Hrannar og Svenna þar sem elduð var ofan í okkur dýrindis máltíð. Að henni og 2 bjórdósum lokinni fórum við svo í Blúskjallaran á tónleika með þeim Sigurði Flosasyni, Pétri Östlund, Eyþóri Gunnarssyni og Valdimari Kolbeini Sigurjónssyni. Þar spiluðu þeir lög af nýjasta disk sínum "Leiðin heim" sem ég ætla ÞOKKALEGA að kaupa mér við fyrsta tækifæri. Að tónleikum loknum héldum við svo sæl og glöð heim á leið.

Elsku Hrönn og Svenni takk fyrir yndislegan dag. Nú þarf ég bara að finna upp á einhverju skemmtilegu að gera þegar að þið komið til mín!























2 Comments:

At 5:59 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Flottar myndir. Hljómar æðislega gaman. Ég þarf að heimsækja þau, elska draugasögur ;)

 
At 11:58 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Mér finnst þetta mjög flottar myndir hjá þér. Upprennandi ljósmyndari. !!!!

 

Skrifa ummæli

<< Home