Brúðkaupsfínerí!
Á morgun er síðasti dagurinn minn í vinnunni fyrir aaaaaaaafskaplega langþráð sumarfrí. Strax eftir vinnu á morgun verður semsagt skellt í lás í Reynistað og haldið suður til höfuðborgarinnar þar sem bíður okkar maraþondagskrá í brúðkaupsundirbúningi. Ég er reyndar svo ótrúlega heppin að eiga mikið að góðu fólki að sem er tilbúið að aðstoða mig með allt á milli himins og jarðar svo að ég er ekki eins stressuð eins og ég hélt að ég yrði. Samst sem áður vaknaði ég kl. 4 í nótt og gat ekki sofnað aftur yfir áhyggjum yfir þessu öllu saman..en þetta reddast nú allt á endanum held ég.
Ég get glatt gæsavinkonurnar mínar á því að ég pantaði mér tíma á snyrtistofu næsta mánudag þar sem verður farið í svaka meikover með nöglum, plokkun/litun og vaxi (ááááái). Þar mun ég af einstökum glæsileik leggjast við fótskör fegurðargyðjunar og heita því að verða dama á brúðkaupsdaginn minn. Ég ætla meira að segja að reyna að halda öllum nöglunum fram yfir laugardag..allavega svona rétt á meðan athöfnin stendur yfir ;)
Á föstudaginn verður svo farið í rúnt með skreytingarnefndinni og verslað það sem þær segja mér að kaupa (ég er svo hlýðin). Á laugardaginn næ ég svo í Ölmu á flugvöllinn og reyni að gera eins mikið og ég mögulega get. Á sunnudag er brúðarfatasjopp í gangi á á mánudag er snyrtistofudeit.
Á þriðjudag er svo að klára að versla, ná í Åsu á flugvöllinn og bruna norður...semsagt nóg að gera.
Hlakka til að sjá ykkur öll!
Knúsur
Hrabbý

3 Comments:
Það er svo gott að eiga svona snyrtistofudeit, en ég hef aldrei verið svo huguð að fara í vax.
By the way...viltu kenna mér á blóðberg.
Elsku Hrabbý og Haddi
Innilega til hamingju með daginn og vonandi eigið þið bjarta framtíð saman.
Dagný Rósa
Skrifa ummæli
<< Home