Helgi í sveitinni
Á fimmtudaginn brunuðum við hjónaleysin í sveitina til mömmu og pabba. Ferðin gekk bara vel. Það er alveg ótrúlegt hvað allar vegalengdir verða stuttar þegar maður er langt í burtu frá öllum.
Helginni eyddum við bara í afslöppun og endalausa ánægju. Meðal annars fór ég og lagði nýja vatnsleiðslu með pabba í Gamla Dæli sem endaði nú eiginlega með hálfgerðum fornleifauppgreftri. Ég straujaði líka gardínur í nýju herbergin á Fitinni (Haddi tók mynd af mér að strauja..hafði sko aldrei séð mig gera það áður og vildi eiga heimild). Svo grilluðum við lambakjöt í kvöldmatinn...mmmmm. Umd kvöldið fórum við á spilakvöld til Döggu og Óla á Bakka þar sem við spiluðum Catan eins og við ættum lífið að leysa. Um hálftvö leytið datt okkur Döggu svo allt í einu að fara á ball svo að við brunuðum á Hvammstanga og borguðum múltimillur fyrir að hrissta á okkur skankana í 40 mínútur. En það var nú samt sem áður mjög gaman svo að ég sé ekki eftir því. Á laugardeginum þrifum við mamma heita pottinn því að einhverjum snillingum datt í hug að setja handsápu í hann kvöldið áður svo að hann myndi nú freyða!!! Það tók okkur heillangan tíma enda sápan komin í ógeðslega klístraða kekki sem þurfti að skrúbba í burtu. Potturinn var náttúrulega lokaður það sem eftir var helgarinnar og restin af liðinu á ættarmótinu var brjáluð út í gæjana fyrir það..tíhí.
Seinna um daginn stóð ég í hestastússi ásamt vinnukonunum okkar. Við sóttum hestana upp í girðingu og sorteruðum folaldsmerarnar frá reiðhestum og trippum. Það voru komin fjögur folöld í Dæli í skemmtilegum litum, móálótt, bleikblesótt, rautt og jarpt og allt merar :) Það verður skemmtilegt að sjá hvað kemur út úr þessu. Að lokum tókum við trippin okkar Hadda, þá Höfðingja og Röðul, frá til þess að reka í fortamningu til hans Magnúsar á Stóru-Ásgeirsá. Við vorum vissar um að trippin yrðu vitlaus í rekstri og ákváðum því að taka 2 gamla og góða reiðhesta með til að róa þau niður. Það gekk nú ekki betur en svo að báðir reiðhestarnir urðu eftir vegna samstarfsörðugleika en trippagreyin fylgdu mér og Funa mínum eftir eins og skugginn alla leið á mikilla vandkvæða.
Á laugardagskvöldinu kíktu slöppuðum við bara af með fjölskyldunni og Dagga og Óli komu aðeins í heimsókn. Við lögðum svo af stað upp úr hádegi á sunnudeginum og vorum komin heim um níu.
Það var æðislegt að koma heim og ég er algjörlega endurnýjuð eftir að hitta mömmu og pabba og Kidda og Sponsu og Önnu og bara alla!! Ég hlakka til að koma aftur í ágúst og vera ennþá lengur (í kannski pínu meira stressi).
Hrabbý skabbí

1 Comments:
hurru...!!! þú mynnist ekkert á gestina sem komu óvart í sveitina??? ég er bara næstum því bara móðgaður. luv ya any way
Skrifa ummæli
<< Home