Á ég að vera stressuð?
Já nú er ég spurð nánast á hverjum degi hvernig brúðkaupsundirbúningur gangi, hvað margir komi, hvað eigi eftir að gera o.s.frv. Ég ælta bara að svara þessu í eitt skipti fyrir öll svo að ég þurfi ekki að endurtaka alltaf sömu hlutina í símann :) SNIÐUG!
- Í veislunni verða ríflega 100 manns af allra þjóða kyni
- Ég er ekki búin að kaupa "kjólinn" enda hef ég ekki ennþá ákveðið í hverju ég ætla að vera. Alma vinkona er langt á undan mér í þeim efnum og er búin að kaupa átfittið fyrir brúðkaupið mitt...já sumir eru tímanlega í því!:-). Ég versla ekki fötin fyrr en vikuna fyrir brúðkaup (þegar ég verð orðin mjó - right) og þá verður hóað saman öllum helstu tískuráðgjöfunum mínum.
-Athöfnin fer vonandi fram úti á túni (ef að vel viðrar) þar sem við verðum gefin saman af Sigurði Grétari presti á Hvammstanga.
-Veislan fer fram í stóru brúðkaupstjaldi (líka úti á túni). Á boðstólnum verður grillkjöt af íslenskum sveitasið, bjór og léttvín og svo að sjálfsögðu brúðkaupsterta, kaffi og konfekt á eftir.
-Að málsverði loknum mun hljómsveitin Feðgarnir leika fyrir dúndrandi dansi eins lengi og fólk stendur ennþá upprétt.
-Veislustjórar verða þau Dóri frændi hans Hadda og Alma vinkona mín. Allir þeir sem ætla sér að vera með einhvers konar Stand-up og kvikindisskap í veislunni þurfa því að hafa samband við þau, annaðhvort í mail eða bara á föstudeginum þegar að fólk kemur á staðinn.
Svona er staðan í bili allavega! Ykkur er frjálst að spyrja mig í svona kommentum hér að neðan og ég skal svara öllu sem vit er í ;)
Knúsur
Hrabbý

2 Comments:
Ka er bara brúðkaup í sumar, hei hef ég alveg misst af þessu???
kver er að fara að gifta sig, er ég boðin, ég hef ekki fengið boðskort ekki Villi og ekki Kiddi, er ætlast til að við séum á svæðinu? hey og Alma bara á réttum tíma , ka er heimsendir í farvatninu??? eða???
út af hverju?? af hverju?? hvers begna og hvað??? bara nokkrar spurningar. kús frá mömmsu sinni
Sko...er þú ætlar að leigja þér brúðakjól þá ertu orðin andskoti sein. Ef þú ætlar að prjóna þér lopapeysu þá skaltu fara að byrja á því. Gúmmístígvélunum má redda nokkrum dögum fyrir brúðkaup og ef það tekst ekki þá get ég lánað þér mín. Maður á víst að vera í einhverju lánuðu. Ég er ekki búin að redda mér fötum fyrir brúðkaupið, geri það í sumar, a.m.k. að kaupa mér nýjar buxur, því ég á ekkert nema eitthvað götótt og tætt. En hversu "ófínn" á maður að mæta ;)
Skrifa ummæli
<< Home