Og veturinn kom með kulda og él...
Rosalega er kalt úti núna og búið að vera undanfarna daga. Það var nú guðsmildi að ruslatunnan okkar er bundin niður því í gær flaksaði hún til og frá í rokinu eins og þjóðfáninn á 17. júní. Það er eitthvað svo þjóðlegt að flagga ruslatunnu...alveg einstök lífsreynsla það.
Í gær dáðist ég svo að henni Lísu (samstarfskonu), sem var svo dugleg að vinna í allan gær, að ég bauð henni yfir til mín í kaffi, sletti í pönnsur og hrærði saman brauðrétt úr því sem ég fann í ísskápnum. Svona til gamans endurnýjaði ég kynni mín við Tarotspilin góðu og lagði spá fyrir hana. Lísa varð svo rasandi bit og sagði að mér væri nú alveg óhætt að gera meira af þessu þar sem að ég hafi hitt naglann á höfuðið með allt sem ég bablaði þarna fyrir hana! :) Já maður er nú bara gúru ofan á alla hina snillina sem maður hefur tileinkað sér í gegnum árin! Þetta var allavega mjög skemmtilegt en alveg rosalega orkufrekt líka. Ég er búin að lofa að kíkja í spil fyrir ákveðið fólk sem les alltaf þetta blogg og ég fer alveg að koma mér að því! Spilin eru allavega komin upp úr kassanum og á stofuborðið...það er nú alltaf byrjunin.
Tengdamamma varð fimmtug í gær (tengdapabbi í janúar) og á morgunn á að halda partý aldarinnar þeim til heiðurs. Við erum að reyna að fá gert við bílinn svo að við komumst í bæinn þeim náttúrulega að miklum óvörum. Við erum farin að halda að fólki finnist við búa á hjara veraldar. Allavega svo langt í burtu að því finnst ekki taka því að bjóða okkur í afmæli !!! :) En við erum nú svo léttklikkuð að okkur gæti nú alveg dottið í hug að keyra fram og til baka á sama sólarhringnum, ó sei sei já.
Nú fer hún Alma mín alveg að koma heim frá útlöndum og við náum að hittast í eina kvöldstund. Ég hlakka svaaakalega til enda búin að vera bæði höfuð og handalaus án hennar :) Jæja kannski hef ég einhverjar djúsí partýsögur að segja eftir helgina!
Untill then

2 Comments:
Ég er alveg sammála, þú hefur guðsgáfuna ... gera meira af því að leggja spilin :)
Ja eg er enn ad bida kona. Mig vantar lestur esskan eg er alveg ad punta a mig.
Skrifa ummæli
<< Home