mánudagur, mars 21, 2005

Fínasta helgi!

Já helgin var bara fín! Kiddi bróðir kom á föstudaginn og verður líklegast hjá okkur fram á miðvikudag. Á laugardaginn fórum við upp í Egilsstaði að versla og skoða okkur um. Um kvöldið var svo fengið sér öl og spilað Catan og Da Vinci. Í gær fórum við svo á rúntinn niður á Stöðvarfjörð þar sem við gengum inn að Stöð og borðuðum svo nesti niður í fjöru. Um kvöldið elduðum við svo stórsteik með öllu tilheyrandi...já þetta var bara fín helgi. Það er líka gott að fá Kidda bróðir í heimsókn hann er svo mikill ruglukollur :) Ég vildi bara óska að Vilmar væri aðeins nær mér en þetta, í öllu peningahallærinu er svo erfitt að fara út þó að maður vildi það svo ofboðslega gjarnan. Það fer nú samt að koma að fyrsta útborgunardegi svo fjárhagstaðan fer batnandi.

Hvað finnst ykkur svo um Eurovisionlagið?? Mér finnst það bara þrusufínt, mátulega mikið svona klúbbapopp til þess að geta orðið stór hittari úti allavega.

Ég fílaði mig sem algjöran Júróvisjón nörd á laugardagin þegar að ég horfði á spurningakeppnina hjá Gísla Marteini. Ég vissi meirihlutann af svörunum heheheheh......Amma og afi tóku alltaf upp Júróvisjón þegar að ég var lítil og svo horfði ég á þetta aftur og aftur og aftur daginn út og daginn inn. Svo samdi ég náttúrulega dansa við hvert einasta lag og dansaði eins og vitlaus inn í stofu. Alltaf þegar að amma stakk höfðinu út um eldhúsgáttina var ég fljót að þykjast vera að gera eitthvað allt annað en að dansa...ætlaði sko ekki að láta grípa mig glóðvolga í svoleiðis stelpudóti...það þótti mér sko alls ekkert rokk! En ég hef nú öll mýkst í gegnum árin, dansaði meira að segja Lambada uppi á sviði með henni Döggu vinkonu minni á Árshátið Laugarbakkaskóla árið nítjánhundruðnítíu og eitthvað. Við höfum nú reyndar hvorugar viljað tala um þennan voðalega atburðu síðan...hvað þá að taka sporið. Þetta er nú til á videóspólu á skólabókasafninu ennþá, ég mæli eindregið með þessu sem afþreyingarefni fyrir fjölskyldur stórar sem smáar. Þið sem eigið börn verið svo dugleg að segja þeim að láta sér aldrei detta þvílíka og aðra eins vitleysu í hug!! Nei ég og Dagga vorum sko óhræddar við að dilla okkur fyrir framan hundruði manns, enda alltaf verði svolítið athyglisjúkar. Ég bið Döggu kannski um að sýna Lambada í brúðkaupinu mínu í sumar!!! AHAHAHAHAHHAH!!! Frábær hugmynd! Úff ég verð í lambada flashback í allan dag :)

Rokk og ról (aðeins að reyna að rétta úr kútnum)
Hrabbý

1 Comments:

At 10:08 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

júrólagið er bara ágætt. En samt held eg að það nái ekki langt. Kanski er það bjartsíni í mér sem ræaður för í dag. En þetta með lambaða ekki málið ef eg fæ að vera í sama dressinu og í þe old deis, stuttapilsinu og íþróttatoppnum ekki málið.Annars held eg að það mundi engin fíla það voða vel nema kanski eg og þú.:)

 

Skrifa ummæli

<< Home