Kuldaboli kominn í rassinn!
Já það er kuldaboli víðar en í hálsi og haus! Kuldaboli hefur fundið mig í "rassinum" sjálfum (þetta er einungis landfræðileg tilvísun; Vestfirðir-haus, Austfirðir-rass). Hér snjóar og snjóar þessa dagana og hafísinn færist nær og nær. Ég er farin að hugsa um að kaupa mér riffil til þess að verja mig fyrir ísbjarnaplágunni sem ég er handviss um að fylgi íshrönglinu.
Já fyrir þá sem þekkja mig síðan á íþróttadögum mínum hér fyrr á árum þá ætti ekki að koma á óvart að ég hlaup fyrstu íþróttameiðslin mín í heilan áratug í gær...heheh! Já stelpunni tókst það enn og aftur. Þetta er nú samt ekkert alvarlegt enda ætti ég að vera vön því að hoppa um á öðrum fæti, verst að það hvílir heldur meiri þungi á þessum eina nú en fyrir 11 árum síðan. En það stendur nú allt til bóta ekki satt?

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home