Dagur 2 ... kæri sáli...
Já í dag var sko dagur 2 í nýju vinnunni minni. Ég held að þessi vinna eigi eftir að verða alveg frábær! Það eru reyndar smá byrjunarörðugleikar þar sem að skrifstofan mín er ekki tilbúin og ég sit til skiptist í fundarherberginu og við bókaratölvuna. Í fundarherberginu er ég að gera heiðarlega tilraun til að vinna við tölvu frá krítartímabilinu sem ég hef kosið að kalla Dino, hún líkt og nafni sinn rembist og rembist með tilheyrandi braki og brestum en endar yfirleitt frosin í algjöru kerfi. Hún veldur t.d. ekki að opna mbl.is...hehe :) Talvan við bókaraborðið er miklu betri og nýtískulegri og því er eins og að komast í sumarfrí þegar að ég færi mig eftir hádegismatinn. Það fyndna í málinu er að hún Hrönn, sem er sérlegur og persónulegur lífsráðgjafi minn (spámiðill), var búin að segja mér að aðstaðan mín yrði ekki tilbúin þegar að ég kæmi á staðinn heldur þyrfti ég að rótast á milli vinnustöðva ;) ... ég er löngu búin að sjá að það borgar sig að hlusta á hana mömmu Hrönn enda hefur nánast allt sem hún hefur sagt mér komið í ljós, t.d. var hún búin að spá mér þessari vinnu.
Í gær komumst við að því að því að við Fáskrúðsfjörð er bæði að finna fjöll og sjó! Þokan ákvað semsagt að skreppa inn á land í einn dag eftir þriggja daga samfellda viðdvöl á Suðurfjörðunum. Við hjónaleysin nýttum náttúrulega tækifæri og fórum í sunnudagsrúnt til Stöðvarfjarðar. Mikið rosalega er fallegt hérna maður lifandi! Ég á sko ekki eftir að verða leið á þessu útsýni :) Á laugardaginn skutumst við svo upp í Egilstaði eins og heimamenn hér segja. Þar fórum við í Bónus að versla (alltaf að spara) :)
Jæja farin heim í bili að taka upp úr kössum :)
Ciao
Hrabbý van der fulltrúi

3 Comments:
og hvernig gengur að pakka upp úr kössum ?? :)
hæ hæ við stubbur munum fylgjast með þér elsku hrabbý okkar. gangi þer allt í haginn.... elfa og stubbs
Bíddu við.... á maður ekkert að fá að vita meira???
Skrifa ummæli
<< Home