Mig hefur alltaf dreymt um að verða búðingur!
Hún Lísa samstarfskona mín var að segja mér að þeir sem byggju á Búðum (kauptúnið á Fáskrúðsfirði) væru að sjálfsögðu kallaðir Búðingar! Mér hefur alltaf þótt búðingur einstaklega góður svo að ég er alls ekki ósátt við að vera kölluð Búðingur :) Eins og Lísa segir er búðingur laaangbestur með rjóma svo að ég hlýt að vera nokkuð góð bara ;-).
Nú eru mamma og pabbi að brjótast eftir reiðslóðunum (eins og pabbi kallar vegina austur) til okkar hjónaleysanna í heimsókn. Auðvitað versnaði veðrið um leið og þau tilkynntu komu sína. Búið að vera ekkert nema sól og rjómablíða í 2 vikur, svo koma Norðlendingar og veðrið veit ekkert hvernig það á að haga sér. Á þessari einu mínútu sem það tekur mig að fara í vinnuna (30 sek kannski meira) fékk ég þoku, sól, snjókomu, vind, logn og smá hríðargarg. Ég held að veðrið sé í norðlensku kúltúrsjokki :) Mér finnst bara verst ef þau fá ekki að sjá okkur Búðingana í réttu sólarljósi! Ég var búin að plana að fara með þau á rúntinn og sýna þeim svona það helsta...ég vona bara að veðrið lagist á morgun.
Búðingur OUT!

4 Comments:
Kæri búðingur. til hamingju með heitið :) Vona að helgin hafi verið góð og foreldrar þínir hafi komist heil. Gastu sýnt þeim eitthvað svæðið?
Kæri búðingur. til hamingju með heitið :) Vona að helgin hafi verið góð og foreldrar þínir hafi komist heil. Gastu sýnt þeim eitthvað svæðið?
Til hamingju með allt:) En hvað ertu annars að gera á Fáskrúðsfirði? Hvernig datt þér það í hug:) Ég er forvitin:)
Já já mamma og pabbi voru náttúrulega dregin hér út um allt. Hvað er ég að gera á Fáskrúðsfirði? Góð spurning! Ég fékk alveg rosalega fína vinnu sem upplýsinga- og kynningarfulltrúi Austurbyggðar og þess vegna flutti ég með mann og hund hérna austur.
Skrifa ummæli
<< Home