...og vikan bara búin!!!!!!!
Jahérna! Ég trúi því nú varla að vikan sé að verða búin. Klukkan orðin fimm á föstudegi! Mikið rosalega leið tíminn hratt þessa vikuna. Það hlýtur að þýða að ég sé að skemmta mér vel ekki satt? ;-) Eða sé alltaf svo drukkin að ég sé búin að missa allt tímaskyn.
Ég vil sérstaklega taka tíma og skila saknaðarkveðjum til allra á Skagaströnd sem eru að fylgjast með blogginu mínu. Ég sakna ykkar allra líka, hefði helst viljað hafa ykkur hérna með mér...en svona er bara lífið. Þið kíkið bara á mig í sumar!
Um helgina tekur við síðasta loka í úrpökkunarseríunni. Maður fer þá kannski að raða fötunum sínum í fataskápana og svona..flytja inn í alvöru.
Jæja ég er farin út að labba með manni og barni :) Bið að heilsa öllum og eigið góða helgi dúllurnar mínar.
Hrabbý át!

1 Comments:
Gaman að sjá að þú ert á lífi og hress að vanda. Allt við sama í Höfðaskóla. Bið að heilsa rauðhausnum sem þú býrð með.
Kveðja frá grána gamla í skólanum.
Skrifa ummæli
<< Home