Hann brósi minn á afmæli!
Ég vil byrja á að óska besta stóra bróðir í heimi til hamingju með 30 ára afmælið. Hann stækkar strákurinn :)
Svo vil ég lýsa eftir týndri vinkonu! Hún Alma Hrönn Belgíufari hefur ekki látið heyra í sér á blogginu í laaaangan laaaaaaaaaaangan tíma. Ég er farin að halda að Task Force hafi rænt henni og flogið með hana á skikkjunni sinni til belgíska Kongó!
Jæja þá er vinnan loksins farin að taka á sig einhverja mynd. Nú er ég nokkuð viss um allavega 50% hluta þess sem ég er ráðin til að gera. Ég veit allavega að þetta er bæði fjölbreytt og alveg rosalega skemmtilegt. Dagarnir fjúka áfram svo að maður er kominn í föstudagsskap á mánudögum :) Ég þarf náttúrulega ekki að ítreka það að dagana 22. - 24. júlí verða allir mínir vinir, kunningjar og ættingjar á Frönskum dögum á Fáskrúðsfirði
Heilsuátakið hjá okkur skötuhjúunum gengur bara mjög vel. Við förum og hreyfum okkur á hverjum degi og borðum ógrynnin öll af ávöxtum, grænmeti og tilheyrandi hollustu :) Svo tek ég náttúrulega lýsi og vítamín eins og óð manneskja. Ég er líka farin að æfa blak sem er bara mjög skemmtilegt. Ég kem sjálfri mér á óvart með snilldartöktum frá því í FB í gamla daga :) (ehhhhh....einmitt). Svo er alltaf svo gott veður hérna!! :)
Sæla úr sólinni
Hrabbý

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home