Páskarnir komu og fóru!
Jæja þá eru páskarnir liðnir. Við skötuhjúin tókum það bara rólega yfir hátíðarnar fyrir utan eina fjallgöngu sem farin var á sjálfan Páskadag. Um morguninn ákváðum við að sýna mátt okkar og megin með því að klífa Sandfell sem er hér handan við fjörðinn. Við tókum til nesti, höskuðum okkur af stað og hófst gangan um 10:30. Það var frábært veður, hvergi ský á himni og rosalega hlýtt svo að við sáum fljótlega að flíspeysurnar tvær, jakkarnir og húfurnar voru kannski óþarfar en gösluðumst með þetta allt í bakpokanum þrátt fyrir það enda kunn staðreynd að hitastig fer kólnandi eftir því sem ofar dregur ekki satt? Eftir að hafa öslað yfir ár og læki til þess að komast á rétta gönguleið héldum við áfram sæl og ánægð með að vera svona professjónal í þessu. Ég held að við höfum náð að fylgja svo sem eins og 3 stikum þegar að við ákváðum að við gætum nú örugglega fundið okkur auðveldari og styttri leið upp fjallið (ehemm). Við héldum því af stað upp snarbrattar skriður sem vildu alls ekki tolla undir fótunum á okkur heldur renna af stað niður fjallið í hverju skrefi. Eftir að hafa spólað í klukkutíma ákváðum við að kannski væri nú sniðugt að feta sig bara upp snjóblettina (ég tek það fram að svona ca 90° halli var á hlíðinni!!!). Góð hugmynd? NEeeeeeeeeeeehhh....Þegar við höfðum fikrað lengra upp vorum við farin að efast um að lifa það af að klífa á þennan hátt alveg upp á fjall. Haddi kallaði öðru hvoru á mig "Ég er að deyja!" og ég hugsaði í sí auknum mæli um að hringja í mömmu og biðja hana að kalla út þyrluna því að ekki kæmumst við niður heldur án þess að allavega hálsbrjóta okkur. En við þrjóskuðumst þetta áfram alveg fullviss um að mæðin væri vegna þess hversu hátt við værum yfir sjó (ekki vegna þess að við vorum að heimskast upp snarbrattar skriður). Allan tíman sáum við hinn göngustíginn sveigja upp grasi gróna bala næstum alla leið upp á topp og blótuðum heimskunni í sjálfum okkur í sand og ösku. Þegar við loksins náðum að sveigja inn á stíginn aftur horfðum við upp á tindinn, litum á hvort annað og sögðum "sjensinn!", enda sjálfsagt búin að klífa fjallið þrisvar í þessu skriðuhlaupi okkar. Svo fengum við hláturskast, settumst niður og tróðum eggjasamlokunum í andlitið á okkur áður en við héldum af stað niður aftur. Sandfellið var ekki sigrað í þetta skiptið enda snéri það laglega á okkur en við vorum nú samt ánægð með árangurinn enda eins og áður sagði búin að klífa fjallið allavega þrisvar í huganum. Við vorum komin niður í bíl kl. 15:50 og hefðum ekki getað gengið skrefinu lengra. Svo fórum við heim og elduðum páskasteikina sem heppnaðist alveg ótrúlega vel.
Búðingur out

2 Comments:
það eru engir eins miklir snillingar og þið það segi eg satt. Ykkur líkt að prufa einhverja leið sem engin hefur farið áður. Eg er stot af ykkur.
Hrabbý og Haddi í hnotskurn hahahah
Skrifa ummæli
<< Home