Pólskar kleinur!
Í gær datt ég í Júróvisjóngírinn í vinnunni! Fór inn á ruv.is og fann þar vísun inn á gríska heimasíðu þar sem hlusta má á öll sigurlög Júróvisjón frá upphafi í gegnum netið!!! Fyrir idíóta eins og mig var þetta náttúrulega gullnáma. Eftir hádegið sat ég semsagt inni á skrifstofu með Júróvisjón í botni og söng hástöfum. Ég veit ekki hvað gestum sveitarstjórnarskrifstofunnar fannst um þennan snarruglaða Húnvetning en ég heyrði einstöku viðlag sungið úr skrifstofunum í kring ;) Vinnan gekk allavega miklu betur og tíminn var fljótari að líða. Eftir að hafa borðað föstudagspizzuna og drukkið föstudagsbjórinn var ég alveg hörð á því að horfa eina bíómynd í sjónvarpinu og vaka til allavega 12...en nei nei klukkan ellefu núll sjö var mín farin að hrjóta í sófanum og svo vöknuð kl. 7 morguninn eftir, kúrði nú samt til hálf tíu. Ég er bara alveg hætt að geta vakað lengi og sofið út. Þetta eru greinileg ellimerki og ég er farin að hafa af þessu talsverðar áhyggjur.
Í dag fórum við í heimsókn til Hafsteins og Boguslöwu á Stöðvarfjörð. Þarf var tekið á móti okkur með pólskum kleinum sem smökkuðust alveg ótrúlega vel. Það var fín tilbreyting að fara í heimsókn og hitta annað fólk og við erum mjög stolt af okkur að vera farin að kynnast fólki :)
Nú er bara að sjá hvort kerlingin nái að horfa að bíómynd í kvöld og sofa leeengi á morgun :)
Over and out

1 Comments:
Og tókst það?
Skrifa ummæli
<< Home