fimmtudagur, maí 12, 2005

Jehú!

Reykjavíkurförin heppnaðist mjög vel um síðustu helgi. Við lögðum af stað um hálf fimm og vorum komin í bæinn um hálf eitt leytið. Þá var ég búin að keyra alla leiðina nánast non stop og orðin frekar lúin! Planið tókst hins vegar fullkomlega þar sem að við komum öllum að óvörum og tengdó fékk tár í augun. Á laugardagsmorguninn var ég náttúrulega mætt í búðir um leið og þær opnuðu og straujaði kortin eins og vitlaus manneskja, enda orðin frekar þreytt á að ganga í sömu gallabuxunum nánast upp á hvern dag í 3 mánuði. Aldrei þessu vant fann ég bara slatta af fötum sem ég passaði í og langaði í (ekki algengt). Mér til mikillar ánægju var ég líka búin fara niður um næstum 2 heil númer í gallabuxunum ;) maður fyllist nú bara bjartsýni yfir því að verða ofurbomba í brúðkaupinu! Afrakstur verslunarferðarinnar urðu semsagt gallabuxur, bolur, flauelsjakki og samfella! Nú er ég algjört megabeib......ehhehe...(right). Ég brunaði svo beint til ömmu sem hjálpaði mér að stytta buxurnar þar sem að lappirnar má mér virðast vera óvenju stuttar miðað við ummál mittist (eins og ég hef talað um áður hér á blogginu).
Afmælið byrjaði kl. 17:00 og þá fór fólk að tínast í húsið. Tengdó, frænkur og vinkonur voru búnar að undirbúa rosalega flott smáréttahlaðborð og úti á palli voru fullar hjólbörur af ísköldum bjór (mmmmm). Við Haddi vorum náttúrlega frekar algengir gestir við hjólbörurnar enda komin ansi langt að og ekki hægt að láta neitt fara til spillis ;) Til að gera langa sögu stutta jókst ölvunarstig gestanna að sjálfsögðu jafnt og þétt og í lokin voru bara allra hörðustu svallararnir eftir (þar á meðal við). Við kvöddum síðustu gestina rúmlega hálf fimm um morguninn (jehú!!!). Við vorum bæði alveg steinhissa á hvað okkur gekk ótrúlega vel að djamma svona lengi enda í alls engri þjálfun!! :)
Við lögðum svo af stað austur aftur upp úr hádegi á sunnudag eftir að hafa fengið okkur góðan þynnkumálsverð á Kentucky. Það var svona hálfgerð útlandastemmning að keyra þessa leið því að í bæði skipti sáum við hópa af hreindýrum bíta í vegkantinum og á leið austur aftur sáum við svartan svan í Lóni. Þetta er alveg ótrúlega falleg leið að keyra (semsagt suður fyrir) og ég mæli með henni við alla þá sem eru að hugsa um að sækja okkur heim (úr rvk þ.e.a.s.) ef þeir hafa ekki farið hana nú þegar.
Nú sit ég við skrifborðið mitt (Nönnu) í vinnunni og bíð eftir að klukkan verði fjögur því að ég er nefnilega að fara til ÚTLANDA um helgina. Já ég skal segja ykkur það. Ekki nóg með það heldur er ég að fara að hitta hana Ölmu mína í kvöld eftir 7 mánaða Ölmusvelti. Eins og alltaf þegar maður bíður eftir einhverju líður tíminn ekki neitt og ég er að springa úr óþolinmæði.

Ég tjúna inn með krassandi ferðasögu frá útlöndum í næstu viku :)

Hafið það gott um helgina
Hrabbý van der landkönnuður

1 Comments:

At 11:27 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hitta Ölmu já ;)

 

Skrifa ummæli

<< Home