Æv bin gússd!!!
Já hún litla Hrafnhildur fór í sakleysi sínu til Reykjavíkur á fimmtudagskvöldið til að hitta Ölmu sína, borða belgískt súkkulaði og horfa á sjónvarpið. Alma náði í mig á flugvöllinn og var að vanda aðeins og sein (lovjú). Þegar við komum í Dvergaborgirnar vinkaði Hrönn fósturmamma okkur úr glugganum í eldhúsinu hjá sér með bleikt blóm í hárinu (sem ég hugsaði nú ekki mikið út í). Þegar ég var á leið upp tröppurnar hjá henni leit ég til baka á bílastæðið og velti fyrir mér afhverju bíllinn hennar tengdamömmu stæði á bílastæðinu. Það fóru nú að renna á mig tvær grímur! Já þið giskuðuð rétt! Íbúðin var full af konum með blóm í hárinu og bleikar neglur sem að voru búnar að ná upp ótrúlega góðum hópeflisanda á stuttum tíma - með það að markmiði að sjálfsögðu að gera mig að eins miklu fífli og mögulega var hægt. Ég var klædd upp í ótrúlega smart dress (bleikar gammósíur, gallapils, bleikan bol, bleikar fjaðrir, bleik sólgleraugu, bleika kórónu, svarta silkihanska og gullskó). Svo var mér afhentur listi með 10 hlutum sem ég varð að klára fyrir kl. 5 morguninn eftir (en þá þurfti ég einmitt að vakna til að taka flug). Listinn samanstóð af eftirfarandi atriðum:
Ég þurfti að:
- Semja ljóð um sjálfa mig
- Reka upp Tarzan öskur á almannafæri
- Syngja 2 lög í karókí þar af eitt með Elvis
- Skilja eftir veggjakrot á kvennaklósetti
- Safna eins mörgum símanúmerum frá karlmönnum og ég mögulega gæti
- Safna eins mörgum kossum frá karlmönnum og ég mögulega gæti
- Dansa upp á 2 borðum
- Vera ofboðslega hreinskilin allt kvöldið
- Stökkva inn í leigubíl og öskra "follow that taxi!!!"
- Læra utan að textann að laginu I will survive (því ég gæti þurft að nota hann)
Með listanum fylgdu eftirfarandi hlutir (í bleikum poka) sem ég þurfti að nota við verkefni kvöldsins:
- Bleikur rafmagnstannbursti
- Typpaklakar
- Tússpenni (fyrir veggjakrot)
- Minnisbók (fyrir símanúmerin)
- Penni
- Sápur
Í pokanum voru einnig svona "eatable panties" frá stelpunum til Hadda.
Svo var borinn fram bleikur kokteill, etið og svo farið í drykkjuleikinn "Never have I ever". Ég mæli eindregið með að fara í svona leik með mömmu sinni þar sem að maður kemst að alveg ótrúlegustu hlutum (sem maður gæti þurft að nota á hana seinna...tíhí).
Eins og listinn gefur sterklega til kynna var aðeins hægt að gera eitt af þessum atriðum heima svo að ég var drifin niður í bæ þar sem að ég átti að leysa restina af atriðunum. Í stuttu máli sagt leysti ég öll verkefnin með miklum sóma!! (auðvitað). Ég söng reyndar ekki í karíókí heldur með Heimi og Magna (Á móti sól) sem voru að troða upp á Sóloni. Eftir að hafa gert upp bókhaldið náði ég að safna númerum og kossum frá 47 karlmönnum (líka Fjölni tattú ;) ) frá 12 þjóðlöndum, þar á meðal voru 2 útúrdrukknir Skotar sem voru allsberir undir kiltunum sínum og vildu ólmir fá að deila með okkur dýrðinni. Reyndar ætluðum við alls ekki að geta losnað við þá aftur (marr so sessí sko). Ég dansaði tæknilega séð ekki á borði heldur tunnu á Dubliners þar sem ég náði að heilla upp úr skónnum 2 Frakka sem sátu til borðs með konunum sínum og drukku öl. Aumingja leigubílsstjórarnir voru bara hálf hræddir við mig held ég...mér fannst það atriði svo fyndið að ég gerði það tvisvar bara til að vera viss ...hehe.
Þrátt fyrir að hafa fengið kvíðahnút í magann í byrjun kvölds var þetta alveg ótrúlega skemmtilegt og ég vil þakka öllum yndislegu vinkonunum mínum, tengdó, svilkonum og öllum bara fyrir að hafa gert þetta kvöld algjörlega ógleymanlegt. Ég vil sérstaklega þakka elsku mömmu minni fyrir að keyra alla leið að norðan til að vera með mér...lovjú mammsa. Þið eruð æðislegar og ég elska ykkur allar. Nú er ég farin að grenja eins og þegar ég gekk inn á fimmtudagskvöldið (snökt). Ég set svo inn myndir um leið og þær berast (o my god).
Ég fyrirgef ykkur það meira að segja að hafa ekki hleypt mér að sofa fyrr en kl. 2 svo að ég náði bara 3 tíma svefni (afvötnun) fyrir ferðalagið út. Ég svaf bara í flugvélinni og fékk mér þynnkuborgara á Kastrup. Var bara hheeevíti góð á eftir enda partýdýr (greinilega miðað við árangurinn kvöldið áður)
Knúsur
Gæsin

1 Comments:
Ég er ánægð að þú hafir verið ánægð með kvöldið, ég hefði svooo viljað getað verið lengur. Vildi ekki mæta þunn og áfengislyktandi að kenna börnum á fermingaraldi ;) Ég held ég vilji ekki fara í þennan drykkjuleik með mömmu minni, sumt langar mig bara EKKI að vita! ;) En þú varst algjör gella og tókst þig vel út í dressinu. Mér fannst þetta ógeðslega flottar gammósíur, var að hugsa um að kaupa mér svoleiðis grænar en hugsaði þá með hverju ég gæti notað það (sem var...ekkert...) svo ég hætti við. Ég tók hluta á ljóðinu þínu upp á vídeó á myndavélinni minni og þarf að senda þér.
Kveðjur úr prófagerð.
Edda
Skrifa ummæli
<< Home