miðvikudagur, júní 22, 2005

Kann ekki á svona brúðkaupsdót!

Já ég er nú farin að halda að ég sé alltof layed back og kúl yfir þessu brúðkaupi okkar í sumar. Þegar vinkonurnar frétta að ég ætla ekki að kaupa fötin fyrr en vikuna áður heyrast bara andköf, stunur og upphrópanir „Jesús minn!“, „Ertu biluð?“, „Er ekki í lagi með þig?“, „Guð minn góður!“ og „Guð minn almáttugur!“. Hér með tilkynnist að þessar upphrópanir eru farnar að stressa mig verulega...og ég sem er að reyna að vera ýkt svöl með þetta allt saman...svona hórur og kókaín KISS týpa eins og Svenni (heheheh). Ég hugsa greinilega alltof mikið eins og karlmaður, enda hefur verið staðfest af læknum að í mér sé alltof mikið magn af karlhormónum og lítið af kvenhormónum. Fékk meira að segja voða flott bréf um þetta frá honum Kára vini mínum í Íslenskri erfðargreiningu um daginn. Eitthvað eru litlu kvenhormónin mín nú að rembast samt sem áður því Rósa frænka er búin að koma tvisvar í heimsókn á 3 mánuðum..held stundum að hún sé í vitlausu húsi..en hvað með það veri hún velkomin!

Ég á eftir að skipuleggja og reka heila bæjarhátíð áður en ég kemst í það að skipuleggja brúðkaupið mitt svo ég vil biðja fólk vinsamlegast um að taka mig ekki á taugum þangað til :)

Farin á fund!
Hrabbý mikilvæga

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home