fimmtudagur, júlí 28, 2005

......og þá verður EKKERT MÁL ......


Jæja þá eru Franskir dagar afstaðnir og ég er bara ótrúlegt en satt á lífi ennþá. Ég get með sanni sagt að ég hafi aldrei upplifað annað eins álag en þessa viku sem allt var á fullu. Frá fimmtudegi fram á sunnudag vann ég 43 yfirvinnutíma + 16 dagvinnutíma. Ég var á stanslausum hlaupum um allan bæ með síman á eyranu 95% af tímanum. En allt gekk þetta stóráfallalaust fyrir sig þó svo að skipulagningin hafi að sjálfsögðu verið langt frá því að vera fullkomin. Þetta var að sjálfsögðu heilmikill skóli en ég held að ég geti fullyrt að þetta geri ég ALDREI aftur á þennan hátt. Það þarf eitthvað mikið að breytast til að ég fáist til að gera þetta aftur. Það er náttúrulega svolítið erfitt að standa fyrir hátíð sem vanalega byggir upp á sjálfboðaliðum á mestu, þegar að afskaplega fáir bjóða sig fram. Ég hef líka á tilfinningunni að fólk haldi að svona hátíð sé hrist fram úr erminni eins og ekkert sé. En NÓG UM ÞAÐ!!!! Á heildina litið er ég bara nokkuð sátt við hátíðina og held að fólk sé það bara líka.

Opinberu gestirnir frá Frakklandi skemmtu sér allavega alveg rosalega vel og voru næstum því mígandi fullir allan tíman enda helltum við í þá víni villevekk. Þetta var ótrúlega hress hópur og það var reglulega gaman að kynnast þeim. Nú er ég bara farin að hlakka óskaplega til að fara til Frakklands í September. Alma þú ert semsagt pöntuð til Gravelines í kringum 23. september ;) Þau fyrirgefa mér alveg fyrir að hafa næstum því sofnað undir ræðunum þeirra í sunnudagskaffinu ..hehe. Ég var orðin svolítið þreytt enda skellti ég mér með þeim á ball á laugardagskvöldinu og kom ekki heim fyrr en um 4!! :) Þau eru allavega búin að setja sér það markmið að láta mig ekki einu sinni skeina mig sjálfa þegar að ég kem út!! :) :) :) :) Það eru mjög háleit markmið ... en svolítið forvitnileg líka.


NÆSTA MÁL!! Næsta mál er að sjálfsögðu brúðkaupið! Nú eru bara rétt 2 vikur í herlegheitin og ég á að sjálfsögðu eftir að gera næstum því ALLT. Ég er nú samt ekkert stressuð fyrir þetta enda á þetta eftir að verða pís of keik miðað við ný afstaðna helgi.

Ég hlakka bara svo afskaplega til að fara í sumarfrí. Maður er orðinn hálf lúinn og mig langar til að njóta þess að undirbúa brúðkaupið mitt í friði og ró...ég fæ nú alveg heila viku í það :)

Ég mun að sjálfsögðu rífa alla sem vetlingi geta valdið í það að hjálpa mér aðeins á föstudeginum 12. allavega þurfum við nokkra fíleflda karlmenn til að hjálpa okkur að setja upp tjaldið. Ég hef engar áhyggjur af að það gangi ekki upp...er það nokkuð?????


Jæja þarf að halda áfram að vinna :)

þriðjudagur, júlí 19, 2005

Allapatarí????

Ég er á fullu að plana frönsku dagana núna gott fólk svo að ég hef bara engan tíma til að blogga. Ég lofa að bæta úr þessu í næstu viku.

Er samt á lífi og nokkurnveginn komin með magasár.

Hrabbý ááááát!

þriðjudagur, júlí 12, 2005

Aaaaagalega fínt!

Í gær var ég búin að skrifa svona líka aaaagalega fínt blogg hérna inn. Svo, takkaóði fjandinn sem ég er, strokaði ég það allt út með einni hreyfingu (marr með svo fína takkaputta). Ég nennti nú ekki að reyna að endurnýja þetta í gærkvöldi þar sem ég var hundfúl út í vinstri hendina á mér og átti í mestu vandræðum með að koma í veg fyrir slagsmál á milli hægri og vinstri. Hægri kann ekki að meta svona vinnubrögð eftir að vera búin að þeytast tignarlega um lyklaborðið í x tíma. En ég ætla nú samt sem áður að reyna að segja ykkur aðeins frá síðustu dögum.

Laugardagur
Við vöknuðum fyrir hádegi, tókum saman nesti og mældum okkur mót við tengdó inni í Fljótsdal, en þau voru að koma ofan af Vopnafirði. Á meðan við biðum eftir þeim í Fljótsdalnum fórum við í Végarð, sem er upplýsingamiðstöð Landsvirkjunar um framkvæmdirnar á Kárahnjúkum. Þar gat maður lesið allt um framkvæmdirnar frá A-Ö og séð hvernig þetta virkaði nú allt saman. Að þessu loknu brugðum við okkur svo á Skriðuklaustur þar sem að Írinn Martin lóðsaði okkur um forleifauppgröftinn og sagði okkur svona það merkilegasta um hvað hefði fundist. Að þessu loknu stoppuðum við við afleggjarann upp að Kárahnjúkum og flugum nýja ESSO flugdrekanum okkar og biðum eftir að húsbíllin Stjáni blái kæmi af staðinn með hersinguna innanborðs. Þegar hann birtist klifum við um borð og brunuðum upp að Kárahnjúkum þar sem við skoðuðum framkvæmdirnar. Þvílíkt og annað eins maður. Þetta er alveg svakalegt! Maður var eins og maur þvílík er stærðin á þessu batteríi..og þeir eru bara rétt að byrja! Leiðin upp að Kárahnjúkum er samt voða flott. Þetta var í fyrsta skipti sem ég sé norðurhluta Vatnajökuls og það er mjög flott útsýni yfir í Snæfellið og Kverkfjölin. Eftir að hafa dæst og gapað í smástund renndum við niður í Egilsstaði þar sem tengdó bauð í grillaða kjúklingavængi, rauðvín og bjór.

Sunnudagur
Á sunnudaginn vöknuðum við klukkan hálfeitt (ahhhhhh..gott að sofa). Ég dreif mig í göngufötin og gekk yfir Víkurheiðina á milli Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar. Gangan tók um 3 tíma og var mjög skemmtileg. Það var sól og blíða, en reyndar mjög hvasst uppi á fjalli og mótvindur allavega helminginn af leiðinni. Ég göslaðist þetta nú samt og yfir heiðina komst ég :) Um kvöldið grilluðum við svo nautalundir (erum búin að vera rosalega duleg að grilla síðan Haddi kom gasgrillinu í stand). Um kvöldið héldum við svo áfram að horfa á CSI þættina sem Edda tók upp fyrir okkur :)

Mánudagur
Í gærmorgunn byrjaði ég á því að bruna upp í Egilsstaði og ganga frá Frönskudagablaðinu í prentun. Í Krónunni á Reyðarfirði hitti ég tengdó sem hafði flúið ofan af Borgarfirði kvöldið áður því það var spáð brjáluðu veðri. Þau komu svo yfir á Fáskrúðsfjörð þar sem ég bauð þeim í kvöldmat. Svo fórum við Rúna og Elín í hvalbeina- og steinaleit á Fögrueyri (gömul hvalstöð frá aldamótunum 1900). Við kíktum líka aðeins upp með Melrakkalæknum þar sem bæði ég og Elín rennblotnuðum í fæturna. Svo tíndum við smá blóðberg í teframleiðslu heimilisins og héldum svo heim.

Það er semsagt nóg að gera hérna megin og margir búnir að boða komu sína á næstu dögum. Helga og Kiddi eru á leiðinni austur. Svo eru frönsku dagarnir að bresta á eftir rúma viku (shit) og þá reynir á hvort að kerlingin sé eins góður skipuleggjandi og hún þykist vera :) Ég er nú samt viss um að það á eitthvað eftir að klúðrast, enda segir Müller að allt klúðrist sem getur klúðrast :)

mánudagur, júlí 04, 2005

Já ég er á lífi!

Eins og flestir vita gekk mannskaðaveður yfir Austurland á sunnudaginn. Fagridalur lokaðist í 12 tíma vegna veðursins og mikilla skriðufalla. Edda vinkona sem er búin að vera hjá mér í nokkra daga varð veðurteppt á Fáskrúðsfirði þann 3. júlí 2005 - þetta fer í sögubækurnar ekki spurning :) Ég veit ekki hvert ég er komin eiginlega. Svo fór í sundur ljósleiðari á Reyðarfirði sem að viðgerðarmenn komast ekki í að gera við fyrir stanslausri rigningu og aurskriðuhættu. Ég er því bæði sjónvarpslaus hér heima og svo internetlaus í vinnunni! Ég verð því ekki á MSN inu alveg á næstunni því að þeir gera ekki við strenginn fyrr en það hættir að rigna og skriðuhættu er aflýst.

Fyrir utan þetta er bara allt fínt að frétta hjá okkur. Skipulagninga Franskra daga gengur bara rosalega vel. Þið náttúrulega takið frá helgina 21. - 24. júlí og brunið austur. Það verður rosalega gaman.

Ég skrifa meira seinna dúllurnar mínar ég ætla að skríða uppí með karlinum mínum ;)

Knúsur
Hrabbý