GRIMM SJÚKHEIT
Ýmislegt um allt og ekkert!
þriðjudagur, maí 30, 2006
föstudagur, maí 19, 2006
Rússland Aðalheiður!! Rússland!!!!!!!!!!!!!!!
Nú held ég að sumir séu bæði heyrnar- og sjónlausir elsku Alla mín! Ekki nóg með að lagið sé leiðinlegt heldur er gæinn eins og hann sé með orm í rassinum sem hann er að reyna að hrista út án þess að nota hendurnar...ææææ. Það er ekki nóg að vera sætur nefnilega. Ég var svolítið hissa að sjá hvaða lög komust áfram í gær, á meðan önnur sem mér fannst í betri kantinum sátu eftir. Sjö af tíu lögum frá Austur-Evrópu..hmm eitthvað munstur í gangi.
Ég var nú samt sannspá með Makedóníumenn og Finna. Ég er alveg viss um að bæði þessi lög verða í topp 5. Svo er bara að sjá hverjir verða með þeim þar. Ég veðja á Bosníu, Lettland og jafnvel Svíþjóð. Rúmenar gætu líka orðið ofarlega. Vá hvað ég er mikill Júrólúði :).
Ég vissi nú ekki alveg hvernig mér átti að líða þegar að Silvía fór á svið. Maður brosti út í annað en hálfpartinn skammaðist sín líka. Það er örugglega ekki skemmtilegt að vera púaður niður þó svo maður sé ógissslega kúl internasjónal súperstar. Enda sýndist mér hún ekkert skemmta sér neitt svakalega vel þarna. Örugglega mjög erfitt að vera í karakter 24/7 í marga marga daga. Ég var allavega dauðfegin að þurfa ekki að horfa á þetta aftur á laugardaginn og held að hún hafi verið fegin líka.
Á morgun verður grilljúróvisjónpartý á Bakka :) Það leiðist mér nú ekki sko.
mánudagur, maí 15, 2006
Júrovisjón!!
Nú er náttúrulega einn af uppáhaldsviðburðum ársins að bresta á í vikunni og ég að sjálfsögðu búin að stúdera lögin svona flest allavega. Ég lýsi því hér með yfir að lag mitt í þessari keppni er lag Lettlands, flutt af Cosmos (án undirleiks). Það er eitthvað við þetta lag sem fær mig til að hlusta á það aftur og aftur og aftur. Ég held allavega með þeim. Svo finnst mér danska og hollenska lagið líka töff.
Silvía er náttúrulega að gera allt vitlaust í Aþenu eins og flestir vissu að hún myndi gera. Mér finnst Silvía mjög fyndin en ég veit samt aldrei hvernig mér á að líða þegar ég heyri um skandalana þarna úti. Maður svona brosir út í annað en skammast sín hálfpartinn líka, þetta er hálf skrítin tilfinning. Hún vekur allavega pottþétt athygli, hvort hún vinnur einhver atkvæði út á það er svo annað mál og kannski algjört aukaatriði.
Ég er mjög spennt fyrir fimmtudeginum og ætla mér sko að horfa á þetta frá upphafi til enda. Svo bíð ég náttúrulega eftir því að verða boðið í Júróvisjónpartý (ha??? Dagga ha?????).
Það er hægt að hlusta á öll lögin inn á http://212.30.217.117/eurovision linkur - Keppnin efst í vinstra horni.
Gerist Júróvisjónidíótar...það er BARA gaman :)
Nei ég er ekki horfin, dáin, dottin í það eða lokuð inni á stofnun. Ég er alveg sprelllifandi og í tunglfullu fjöri. Það er bara búið að vera svo hrikalega mikið að gera undanfarið að ég hef ekki haft tíma til að skrifa bloggedí blogg fyrir alla mína heittelskuðu. Ekki hjálpaði til að tölvan mín hrundi og var out í 3 vinnudaga sem var nú ekki gott fyrir litla stressaða hjartað mitt.
Nú er semsagt utanlandsreisunum vorsins lokið en ég er nú aldeilis ekki hætt. Haddi nefnilega keypti fyrir okkur brúðkaupsferð til Jamaica!!!! Víhú!!!! við förum þangað í Nóvember og verðum í 10 daga. Stuttu eftir að hann hafði keypt brúðkaupsferðina vann hann svo ferð fyrir 2 til Færeyja með Norrænu. Ekki getum við látið þá ferð fara til spillis svo við verðum að finna okkur góðan tíma til þess að fara þangað. Svo er fundur hjá mér á Shetlandseyjum/Hjaltlandseyjum í október. Svo er nú líka líklegt að maður fari til Gautaborgar aftur um jól eða áramót þar sem að hann Vilmar litli brósi er að verða pabbi í byrjun desember. Já svona gerast nú kaupin á eyrinni, litlu systkynin farin að stinga mann af í barneignunum. ISSS :)
Jæja verð að koma mér að verki aftur..en ég er semsagt á lífi og svona nokkurn veginn heil á geði.
Ciao!


