þriðjudagur, nóvember 07, 2006


The Forensic Turd Database

Ég hef dottið niður á brilliant viðskiptahugmynd sem ég er sannfærð um að eigi eftir að slá í geng og make a million dollars eins og maður sagði. Fyrsta notkunarrétt á hugmyndinni hefur Svenni kúkarass sem var mér, líkt og svo oft áður, mikill innblástur í þessari hugmyndavinnu.

Flest kannist þið við þá gagnagrunna sem CIA, FBI, KGB og aðrar leynilöggur nota til að auðvelda rannsóknir sínar. Hérna erum við að tala um fingraför, dekkjaför, byssukúlur og byssur. Hugmyndin um The Forensic Turd Database byggir einmitt á þessari hugmyndafræði.

Eins og nafnið bendir til er gagnagrunnurinn hugsaður sem allsherjar skrá yfir kúk (enska heitið turd) glæpamanna. Hringvöðvi og þarmar okkar skilja eftir ákveðin för á hverjum kúk sem eru einstök fyrir hvert og eitt okkar. Með því að skrásetja nákvæmlega skítaför (enska skidmarks) hvers einstaklings er hægt að flýta fyrir afgreiðslu sakamála svo um munar og um leið spara ríkisvaldinu ógrynni af peningum. En hvernig er hægt að skrásetja kúk? Jú það er von að þið spyrjið. Ég sé fyrir mér að sérstakur gagnasafnari/rannsóknarmaður gangi hús og safnið hægðasýnum frá heimilisfólki. Hann mun einnig sjá um að taka innvortis myndir af fremsta hluta endaþarms allra viðfanga. Þessi gögn eru svo skönnuð inn í sérhannaðan gagnagrunn sem vistaður verður á alþjóðlegu leyniþjónustuneti með yfirumsjón Interpole og Bjössa Bjarna. Þetta gæti jafnvel verið verðugt byrjunarverkefni fyrir hina nýju íslensku leyniþjónustu. Hvað finnst ykkur?

Chubby konur og bikini!

Jæja nú eru bara 6 dagar í brúðkaupsferð aldarinnar. Ég er svo spennt að ég helst ekki í sætinu lengi í einu heldur sprett upp og hristi mig öðru hverju. Það er samt ýmislegt búið að vefjast fyrir mér í aðdraganda þessarar brúðkaupsferðar sem ég ætla að bera undir ykkur:

1)Hvað finnst ykkur um tjöbbí konur og bikini?

Ég hafði bara hugsað mér að vera í afskaplega plain sundbol á ströndinni þangað til að ein vinkona mín benti mér á að ég væri hreinlega ekki kona með konum nema að fara í bikini á sólarströnd. Mér hefði aldrei dottið þetta í hug sjálfri, enda til lítils að vera í einhverjum pjötlum sem festast undir fellingunum og sjást ekki hvort sem er. Þessi vinkona mín náði nú samt að selja mér hugmyndina um bikiníið nokkuð fljótt og var aaaaafskaplega sannfærandi. Hún sagði bara: Ef fólki finnst manni líta illa út í bikini...á það bara að horfa í aðra átt :). Ég allavega samþykkti að koma heim til hennar og skoða bikiníúrvalið. Hvort ég þori svo nokkuð að láta sjá mig í því er svo annað mál.


2) Vax, vax, vax og aftur vax

Nú til að geta látið sjá sig í öðru en alklæðnaði pantaði ég vax á snyrtistofu í Reykjavík. Þar verður tekinn fyrir grasagarðurinn og villiblómaengið, en ég ætla að láta skrúðgarðinn liggja á milli hluta þar er hvort eð er allt hálfdautt yfir vetrartímann ;-). Ekki bara það, heldur þori ég ekki fyrir mitt litla líf í skrúðgarðsyfirhalningu. Ef einhverjir hér hafa prófað það eru þeir vinsamlegast beðnir um að kommenta og ráðleggja mér um málið.


3) Hjálpartæki eða ekki hjálpartæki?

Í brúðkaupsferðinni er náttúrulega siður að æfa fangbrögðin, sem er mjög gaman og gagnlegt. Það getur aukið skemmtanagildið til muna að hafa dótakassann meðferðis, en ég þori því ekki. Ég vil ekki vera konan sem er stoppuð í tollinum og opnar ferðatösku með kippu af suðandi hjálpartækjum. Trúið mér...það myndi gerast. Ég hugsa að ég verði bara að treysta á sjálfa mig, manninn minn og ímyndunaraflið. Hvað segið þið?

miðvikudagur, nóvember 01, 2006

Excuse me madam!


Innrásin er byrjuð! Rétt áðan hringdi í mig ungur maður sem kynnti sig sem Johnny nokkurn Logan og spurði mig í mikilli einlægni if I was interested in stocks and shares. Mér leið eins og mér hafi verið kippt inn í upphafsatriði Dalalífs þar sem Þór Magnússon og Daníel Ólafsson eru að taka við matarpöntunum í eldhúsinu og búa til skarkala með eldhúsáhöldum til að skapa rétta andrúmsloftið. Annað hvort hefur hann Johnny vinur minn Logan verið staddur á kóræfingu ásláttarhljóðfærafélagsins, eða skrifstofan hans er aaaaaaaaaaagalega bissí. Þvílík og önnur eins læti.

Ekki nóg með það heldur talaði hann Johnny Logan með afskaplega undarlegum hreim, svolítið eins og Frakki sem hefur drukkið of mikið af rússneskum vodka og óvart endað í gagnbangpartýi með 10 bikerleðurhommum.

Sem Eurovison aðdáandi nr. allavega 12 get ég þó allavega verið montin af því að írska tröllið sjálfur Johnny Logan, hafi hringt í mig í vinnuna í dag. Þetta var þó heldur frábrugðið fantasíunni minni um hann, en þar birtist hann nakinn í dyrunum hjá mér með guinnesskönnu á höfðinu og syngur HOOOOLD ME NOW, DON´T CRY, DON'T SAY A WORD JUUUUUUUUUUUUUUUST HOLD ME NOW...................

En maður fær víst ekki allt sem maður vill :)