þriðjudagur, nóvember 07, 2006


The Forensic Turd Database

Ég hef dottið niður á brilliant viðskiptahugmynd sem ég er sannfærð um að eigi eftir að slá í geng og make a million dollars eins og maður sagði. Fyrsta notkunarrétt á hugmyndinni hefur Svenni kúkarass sem var mér, líkt og svo oft áður, mikill innblástur í þessari hugmyndavinnu.

Flest kannist þið við þá gagnagrunna sem CIA, FBI, KGB og aðrar leynilöggur nota til að auðvelda rannsóknir sínar. Hérna erum við að tala um fingraför, dekkjaför, byssukúlur og byssur. Hugmyndin um The Forensic Turd Database byggir einmitt á þessari hugmyndafræði.

Eins og nafnið bendir til er gagnagrunnurinn hugsaður sem allsherjar skrá yfir kúk (enska heitið turd) glæpamanna. Hringvöðvi og þarmar okkar skilja eftir ákveðin för á hverjum kúk sem eru einstök fyrir hvert og eitt okkar. Með því að skrásetja nákvæmlega skítaför (enska skidmarks) hvers einstaklings er hægt að flýta fyrir afgreiðslu sakamála svo um munar og um leið spara ríkisvaldinu ógrynni af peningum. En hvernig er hægt að skrásetja kúk? Jú það er von að þið spyrjið. Ég sé fyrir mér að sérstakur gagnasafnari/rannsóknarmaður gangi hús og safnið hægðasýnum frá heimilisfólki. Hann mun einnig sjá um að taka innvortis myndir af fremsta hluta endaþarms allra viðfanga. Þessi gögn eru svo skönnuð inn í sérhannaðan gagnagrunn sem vistaður verður á alþjóðlegu leyniþjónustuneti með yfirumsjón Interpole og Bjössa Bjarna. Þetta gæti jafnvel verið verðugt byrjunarverkefni fyrir hina nýju íslensku leyniþjónustu. Hvað finnst ykkur?

4 Comments:

At 3:58 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

yebb woman you strike again. Folk verdur farid ad halda ad eg se alveg brjaladur.

 
At 1:17 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Þó svo að ég sé hálfatvinnulaus þá býð ég mig ekki fram sem gagnasafnara!

 
At 10:50 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Halló esskan mín! ég verð nú að segja það að ég er farin að hafa áhyggjur af því að þú sért ekki komin af analstiginu sem samt flestir vaxa af um ca 2 ára. Það er alveg spurning að fara að skoða þetta....

 
At 2:37 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hæ skvís. Ég var niðrí háskóla í dag og fann bækling um ferðamálafræðina. Í honum er klausa um framhaldsnámið.
Minntu mig á það þegar þú kemur heim að segja þér frá því.

Vona að þið hafið það rosalega gott í brúðkaupsferðinni á meðan við erum hér í snjó og frosti :) Hugsa til þin.

 

Skrifa ummæli

<< Home