föstudagur, október 13, 2006

Hósti, hiti og hor!

Haustpestin er komin eins og kría að vori! Nú er Hrabbý sín búin að vera alveg bakk heima með hita, hósta og hor í 3 daga...annað eins hefur nú bara ekki gerst í manna minnum eins og hann Óli minn myndi segja. Ég vona bara að það versta verði gengið yfir áður en ég legg í hann til Hjaltlandseyja (Shetlandseyja) á mánudaginn, er þar verð ég í fundaferð fram á föstudaginn. Góðu fréttirnar eru þær að á leiðinni út og heim þarf ég að taka 2 flug með Atlantic Airways með samskonar flugvél og lenti í flugslysinu í Noregi í fyrradag. Ég er með smá ónot í maganum en hugga mig við tölfræðilegar líkur á því að ég lendi í flugslysi eru afar litlar. Eftir Hjaltlandseyjar (ef ég gef mér að ég lendi ekki í flugslysi) tekur svo við stelpusumarbústaðarferð í Brekkuskóg eina helgi og stuttu seinna er ég flogin á vit reggís og dredda til Jamaica. Hlakka ég til að fara? Neeeeiiiii........

1 Comments:

At 5:53 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Greyið mitt, vonandi fer þetta nú að lagast. Þessi flensa er alls staðar þessa dagana...fólk hrynur í stórum stíl.

Vona samt að þú komist til Hjaltlandseyja og ef þig vantar félagsskap (svona gáfulegan félagsskap) þá er ég kona í það. Svo máttu endilega hafa samband áður en sumarbústaðaferðin skellur á (ágætt að vita hvert maður er að fara og hvenær og hvað á að taka með).

Hafðu það gott snúllið mitt.

 

Skrifa ummæli

<< Home