mánudagur, ágúst 14, 2006

Þriggja daga helgi!

Já loksins fékk keeeeeellingin 3 daga helgi. Á fimmtudagskvöldinu kíktum við aðeins í bæinn. Ég fór í klippingu og við fórum svo saman í bíó. Á föstudeginum kíktum við á SG hús á Selfossi og svo á nokkra staði í bænum. Nú keyrum við ekki fram hjá húsum án þess að pæla í þakefni, klæðningum, gluggaefni o.s.frv. erum algjörlega heilaþvegin af þessum byggingarframkvæmdum. Seinnipartinn fór ég svo á Brennsluna og hitti hann ELSKU Svenna minn. Mikið var gaman að sjá hann! Alveg purifying ;) Um kvöldið fórum við svo í matarboð til Margrétar og Óla, gúffuðum í okkur alveg dýrindis kræsingum og fengum góðar samræður í kaupbæti :). Á laugardeginum versluðum við, kíktum á afa og ömmu og drifum okkur svo norður því í Dæli var allt brjálað að gera, 60 manna hópur í mat og allir sveittir og sælir. Eftir að hafa hjálpað til við matinn fórum við svo heim. Sunnudagurinn var fyrsti dagurinn í laaangan tíma þar sem að ég gerði ekki neitt...EKKI NEITT takið eftir....og svakalega var það gott.

Nú eru það bara Færeyjar í næstu viku :) Ég er orðin svooolítið spennt!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home