Að selja!
Jæja þá erum við að selja íbúðina, hún var búin að vera á sölu í rúman mánuð svo að þetta var ekkert gífurlega löng bið. Ég held að við séum að selja á háréttum tíma og erum bara nokkuð ánægð með verðið (ca 50% verðmætaaukning frá kaupum). Nú erum við farin að grafa nefin niður í spekúleringar um hvernig hús við ætlum að byggja. Haddi er þegar búinn að teikna upp grunnmyndina og nú þurfum við bara að sjá hverjir gera besta tilboðið. Við erum að spá í svona kanadísku einingahúsi, en við þurfum að sjá hvernig tilboðin koma út og reikna svo líka út hvað það myndi kosta okkur að byggja það allt frá grunni sjálf. Ef einhverjir sem lesa þetta hafa eitthvað vit á einingahúsamarkaðnum (við hverja á að skipa og hverja ekki) þá mega þeir gjarnan skilja eftir ráðleggingar hérna. Ég veit að ég get snúið mér til Hrannar og Svenna á Norðfirði því þau eru á fullu að byggja sitt eigið núna. Við erum orðin rosalega spennt. Það verður þvílíkur munur að fá að innrétta heilt hús eftir sínu höfði :) Ég vona bara að okkur farist það vel úr hendi, við erum nú soddans argasnillingar.

2 Comments:
Hæ beibí! Til hamingju með söluna. Ég myndi, sem Selfyssingur, aldrei skipta við annan í einingahúsabransanum en SG-Hús, s:482 3850. Hann Óskar framkvæmdarstjóri er ljúfur og góður drengur
Sæl gamla...
maður rambar á ólíklegustu staði á netflakki...
Gaman alla vega að sjá fréttir af þér. Til lukku með íbúðarsöluna.
Ef þú vilt skoða einingahús skaltu koma á Hvanneyri, held það hafi verið byggðar allar mögulegar tegundir af þeim hér. Akur, Smellinn, kanadísk og svo eitthvað sem ég ekki man hvað heitir.
Kem samt (vonandi) ekki til með að geta boðið í kaffi því ég er, ef áætlanir ganga eftir, rétt í þann veginn að yfirgefa svæðið.
Skrifa ummæli
<< Home