miðvikudagur, apríl 12, 2006


Finnlandsferðin tókst mjög vel þrátt fyrir ákveðna byrjunarörðugleika sem fólu m.a. í sér að missa af 2 flugum. En fall var fararheill og restin af ferðinni var mjög ánægjuleg. Ég skellti mér að sjálfsögðu í sauna og baðaði mig í vök...brrrrr...það var frekar kalt en mjög skemmtilegt. Ég segi ykkur ferðasöguna betur seinna. Þegar að ég kom heim á sunnudaginn eftir 15 tíma ferðalag biðu mín kertaljós (sjá mynd)og sjóðheitt freyðibað. Ég á ÆÐISLEGAN mann :). Í fyrramálið fljúgum við svo til Oslóar þar sem Vilmar og Anna bíða eftir okkur. Svo keyrum við til Gautaborgar þar sem við verðum um páskana. Meira síðar og gleðilega páska.

3 Comments:

At 8:02 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Vá...svo sannarlega yndislegur. En by they way ... þetta er bara svona fyrstu árin ;) Bjarki er alveg hættur þessu ;(

 
At 10:12 f.h., Blogger Hrabbý said...

Jahh..árin eru nú orðin 5 svo ég veit ekki hvort við getum kallað þetta fyrstu árin lengur :) Við höldum allavega í vonina.

 
At 6:56 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Var ekki nokkuð ljóst að þetta var nú svoldið skringilega bókað flug hjá þessum apaketti.
Elska svona óvænta uppákomu sérstaklega þegar þetta er bara hugmyndaflugið og svona góður hugur.
Guðrún Laufey

 

Skrifa ummæli

<< Home