Sólin og jörðin og fuglarnir með...
Í gærkvöldi ákvað ég að drífa mig í sund fyrir vinnu í morgnana, svona sundátak. Kl. 7 hringdi klukkan og ég lét rifa í hægra augað, hlustaði á vindinn, ímyndaði mér kuldann, stillti klukkuna á hálf 8 og hélt áfram að sofa. Kl. hálf 8 lét ég rifa í vinstra augað, heyrði hvolpinn væla, hleypti hundunum út, skreið svo upp í aftur og stillti klukkuna á 8. Kl. 8.15 tókst mér að opna bæði augun 75%, drattaðist fram úr, fékk mér Cherios með piparmyntumjólk (don´t ask), horfði buguð á íþróttatöskuna, ákvað að taka hana með mér. Hávaðarok feykti mér inn í bíl (svona notið ímyndunaraflið)og ég notaði aksturinn til að íhuga stöðuna. Niðurstaðan var sú að synda eftir vinnu fyrst um sinn því að ég er álíka mikil morgunmanneskja og Bob Dylan. Um leið og fer að birta meira ætla ég mér samt að fara fyrir vinnu. Við sjáum hvernig gengur.

3 Comments:
Hreyfing er hreyfing. Af hverju að storka náttúrulögmálunum og fara þegar það hentar alls ekki. Ég er alger b-manneskja og fer því í ræktina á kvöldin og það hentar miklu betur. (ég myndi örugglega stórslasa mig og aðra ef ég reyndi eitthvað hopp og hí fyrir átta að morgni (nema verandi enn á djamminu)).
eg gat alveg ímyndað mér hvernig það hefiði verið að fjúka inní bílin.Ég hef nefnilega séð þig fjúka einu sinni út úr bíll.Ég skil alveg að það hefði verið gott að sofa lengur eins og veðrið var þennan morguninn.Kv Dagga
Já afhverju að fara fyrir vinnu ef maður getur farið eftir vinnu?? kv. Hrönn
Skrifa ummæli
<< Home