þriðjudagur, febrúar 07, 2006

Komin heim í heiðardalinn :)

Nú erum við nánast búin að koma okkur fyrir á nýjum stað...enn og aftur :) Þetta fer nú að komast upp í vana. Ef ég gæti fundið upp á leið til þess að nýta svona pökkunartækni til fjár er alveg spurning hvort ég myndi ekki beina framabrautinni í þá áttina. Reyndar gerði ég nú mest lítið í þetta skiptið, Haddi sá eiginlega um þetta allt því ég var svo "upptekin"..hehehmmm. Já það er ekki auðvelt að vera svona eftirsóttur það get ég sagt ykkur :D.

Líkt og á ýmsum fleiri vinnustöðum er skrifstofan mín langt frá því að vera tilbúin og því víst að ég mun ekki vinna í hinu eiginlega Selasetri fyrr en eftir 2 vikur í fyrsta lagi. Þangað til fæ ég að nýta mér tómt skrifborð hjá ferðamálafulltrúanum og byrja þar á morgun. Síðustu daga hef ég verið að vinna frá Dæli eftir bestu getu en hef fulla trú á að ég eigi eftir að ná þessu öllu saman á fullt swing í næstu viku. Það þýðir ekkert annað en að vera bjartsýnn og hugsa stórt...það er allavega mottóið hér í Húnaþingi vestra þessa dagana. Gaman að sjá hvað það er mikið um að vera hérna og mikil framkvæmdagleði í fólki. Ég held að önnur sveitarfélög gætu tekið kraftinn í þessu fólki sér til fyrirmyndar, því ekki hefur það fengið stóriðju eða annað til þess að rífa samfélagið upp. Hér verður fólk bara að bjarga sér sjálft, það er sko engin "elsku Valgerður" hér á ferðinni...ó sei sei nei. Mér finnst þetta svæði bara ágætis dæmi um það að stóriðja er ekki alltaf lausnin, þó hún geti verið afskaplega gagnleg á sumum stöðum.

Mér þykir þetta blogg farið að verða full pólitískt! En það er kannski ágætis stefna þar sem forstöðumenn menningarstofnanna eiga að hafa skoðanir á hinum ýmsu hlutum og láta í sér heyra. Ég verð að æfa mig á blogginu, taka svona generalprufu á ykkur elskurnar :)

Ciao í bili
Hrabbý

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home