þriðjudagur, janúar 31, 2006

Beibí eint í kreisí!

Já nú er allt að gerast. Karlinn náttúrulega löngu farinn með dótið og hundana og ég ein og yfirgefin fyrir austan. Ekki að mér leiðist að vera hérna þvert á móti. Nú er ég bara orðin svo spennt að byrja í nýju vinnunni að ég næ ekki að einbeita mér að neinu öðru. Þá er gott að hafa verið falin verkefni sem ekki þarfnast heila t.d. eins og að troða ca. 500 álagningarseðlum og 500 greiðsluseðlum í umslög auk þess að troða um 400 launamiðum sömu leið. Ég er búin að hanna sérstaka tækni sem felur í sér lipra fingur og reglustriku með rauðum hjörtum. Hvernig ég beiti þessum verkfærum læt ég náttúrulega ekki uppi enda stefni ég á heimsmeistaratitil í seðlabroti og umslagatroðslu.

Ég er orðin hálf rugluð af spenningi yfir þessu öllu saman. Kannski hlakka ég bara svona rosalega mikið til að hitta Hadda, ég er nefnilega skotin í honum þið skiljið :D.

Kveðja
Hrafnhildur

1 Comments:

At 5:18 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Var einmitt svo rosalega að pæla um daginn hvernig væri með þessa launaseðla sem maður fær í pósti og t.d. yfirlit frá bönkum og fasteignamatinu. Er þetta handgert, situr fólk og setur í umslög hundruð þúsund bréf.
Guðrún Laufey, síhugsandi

 

Skrifa ummæli

<< Home