þriðjudagur, janúar 17, 2006

Pakkedí pakk!

Haddi hætti í vinnunni síðasta föstudag og hófst handa við að pakka í gær. Við sjáum núna hvað við erum orðin góð og skipulögð í að pakka, enda komin með heimsklassareynslu á því sviði :)

Um síðustu helgi fórum við á hjónaball, sem er einhverskonar sambland af galakvöldi og þorrablóti hér á Fáskrúðsfirði. Þar borðuðum við æðislegan mat og horfðum á heimatilbúin skemmtiatriði, þar sem leitast var við að gera grín að sem flestum bæjarbúum, eins og góðra landsbyggðarmanna er siður. Yours trúlí slapp náttúrulega ekki með skrekkinn heldur fékk ágætis skerft af skotum, þar á meðal upphafsatriði skemmtiatriðana þar sem ég var sýnd útbýta drykkjum og garga hallelúja að liðinu :) Ég skemmti mér alveg rosalega vel á ballinu og dansaði sem óð væri við fullt af skemmtilegum konum og mönnum.

Í einum dansinum var ég að dansa polka við ráðsetta frú úr plássinu. Tók allt í einu eftir því að pilsið mitt var eitthvað skrítið! Leit niður og sá að ég var að missa það niður um mig...strengurinn var kominn niður fyrir rass!!! :) DULLLEG..að snappa sér virðingu á Austfjörðum - mér leið eins og Bridget Jones. Hysjaði upp um mig pilsið og hélt áfram að geisla af kynþokka í dillandi polka.

Seinna um kvöldið fékk ég komment frá einum karlkyns ballgesti um að það sæist svolítið mikið í skoruna hjá mér (brjóstaskoruna) en hann fílaði það í botn sagði hann. Svo hvíslaði hann að mér að ef ég lenti í vandræðum með karlmenn gæti ég alltaf hringt í hann, og gaf mér svo gemsanúmerið sitt að lokum. JÁ þið heyrið rétt!!! Kerlingin er argandi sexý og á eftir að skilja Austfirði eftir í flakandi sárum :)

Læt hér fylgja mynd af mér á ballinu með skoru og allt :D!

3 Comments:

At 9:52 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

eins gott að þú ert á leiðinni heim, svo maður geti farið að hafa auga með þér, flakandi sár segirðu, kanski léttir? eða!!!!
allaveganna farðu vaaaarlega um reiðslóðana ,þín elskandi móðir.

 
At 11:25 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Ég hef alltaf sagt þér það,, þú ert drop dead sesssý esskan :)

 
At 8:07 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Ég vissi alltaf að þú værir ólýsanlega sexxxxxxíííí.Eg seigi nú bara! " dónt lúkk at þiss júh" Gangi ykkur vel að pakka.kv D

 

Skrifa ummæli

<< Home