mánudagur, nóvember 28, 2005

Tuttugu metrar á sekúndu og vestan Bolungarvíkuráhlaup

Jæja þá er ég komin aftur heil á húfi úr kúltiveraðri fundarreisu til Varmahlíðar. Á leiðinni norður keyrðum við í 20 m á sekúndu, stórhríð og hálku yfir öll öræfin á meðalhraðanum 70 km/klst. Til Varmahlíðar komumst við samt um 8 leytið um kvöldið þar sem Kiddi bróðir beið eftir mér. Við brunuðum inn á Krók og fengum okkur pizzu, rúntuðum um og löbbuðum aðeins um heimavistina.

Daginn eftir kom mamma svo til Varmahlíðar þar sem að við sátum aðalfund Ferðamálasamtaka Íslands. Fyrr um daginn sat ég svo aðalfund Félags ferðamálafulltrúa, og báðir fundirnir voru mjög athyglisverðir. EN! Athyglisverðari voru þó kvöldvaka og kvöldverður fundargesta á föstudagskvöldinu. Þar sleppti fólk gjörsamlega fram af sér beislinu og fór gjörsamlega fram úr sér í skemmtiatriðunum, Vestfirðingarnir fóru algjörlega á kostum með galdramanninn af Ströndum fremstan í flokki (að öllum öðrum ólöstuðum). Já! Þarna var ég UNG KONA Á FRAMABRAUT og virðulegir ferðamálaspekúlentar rúllandi á milli horna fyrir framan mig. Ég upplifði mig mjög kúltiveraða og dannaða í þessum félagsskap (sem er frekar óvenjulegt fyrir mig ). En þetta var nú samt fanta gaman verð ég að viðurkenna! Ég skreið svo loks örþreytt í bólið um kl. 2 og gat ekki beðið eftir að líða út af en NEI NEI. Herbergið mitt var beint fyrir ofan salinn svo að ég hafði hljómsveitina í eyrunum þangað til hún hætti að spila um 3 leytið. Þegar síðustu tónarnir dóu út lagðist ég andvarpandi á koddann og beið eftir að svefninn dytti á en NEI NEI þá hóf starfsfólkið að undirbúa morgunverðinn með því að draga húsgöng til og frá í salnum með miklum látum. Þessi seremónía tók örugglega liðlega klukkutíma, þá var klukkan orðin 4 og Hrafnhildur litla ekki ennþá sofnuð. Þegar húsgagnabramboltið þagnaði var ég alveg að líða út af þegar að HEEEEEEEEEEEIIIMS UUUUUM BÓÓÓÓÓÓL HEEEEEEEEEELG EEEEEEEEEEERUUUU JÓÓÓÓÓL hljómaði í undarlegum fimmundasöng, aftur og aftur á hótelganginum. Þarna voru mættir Bolvíkingarnir óstöðvandi sem voru sko alls ekki hættir að djamma. Eftir 20 endurtekningar missti ég þolinmæðina, reif mig í fötin og ætlaði að æða út og slá þá flata með skónum mínum þegar að þeir loksins þögnuðu. AHHHHHHHH......ég lognaðist út af og sofnaði svefni hinna réttlátu.

Klukkan 10 morguninn eftir var svo haldið af stað í skoðunarferð um Skagafjörð. Fundargestir voru í MJÖG misjöfnu ástandi og margir hverjir víluðu ekki fyrir sér að fá sér svona eins og 1, 2, 3, 4 afréttara á hinum ýmsu stoppistöðvum, svona rétt til að bjarga deginum. Mér leist hins vegar ekkert á það þegar þeir hinir sömu settust svo undir stýri á bílunum sínum þegar að heim var komið og keyrðu í burtu.

Ég og ferðafélagar mínir komumst heil heim á laugardagskvöldið, alveg búin á því. Haddi hellisbúinn minn var búinn að veiða 2 mýs á meðan að ég var í burtu og ég hef ekki heyrt músatrítl frá því að ég kom heim. Við skulum krossa putta og vona það besta. Hrós dagsins fá Bolvíkingar fyrir óþrjótandi skemmtanagleði og hreina og klára geðveilu 

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home