fimmtudagur, desember 15, 2005

Glitský!

Í gær glóði himininn af furðulegum fyrirbærum, s.k. glitský. „Venjulegu“ skýin voru rauðgullin inn á milli. Ég hef sjaldan séð neitt eins fallegt. Ég gat varla unnið í gær ég var svo upptekin af því að horfa út um gluggann, á milli þess sem ég hljóp út og tók myndir. Gliskýin urðu ennþá meira áberandi eftir að fór að dimma. Hér eru nokkrar af myndunum.







1 Comments:

At 8:12 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Ekkert smá flottar myndir!!! Hlakka til að sjá þig á Þorlák.

 

Skrifa ummæli

<< Home