Fórnarlamb öfundsjúkra Dana!
Þegar ég loggaði mig inn á msn-ið í morgun voru allir contactarnir mínir horfnir af yfirborði jarðar, já HORFNIR segi ég! Ég fór að velta fyrir mér hverjir myndu hagnast mest á því að þurrka út contactlistann minn. Það var sama hvernig ég snéri málinu, niðurstaðan var alltaf sú sama, þ.e.:
Það er nokkuð ljóst að Danir hafa frétt af velgengni minni og hafið mótvægisaðgerðir.
Hvað annað gæti þetta verið? Ekki neitt! Það er nefnilega ekki nóg að Danir séu að berjast við fuglaflensu heldur herjar víruspest á seli í Norðursjó svo þeir eiga engan sjens greyin. Fyrir utan þetta eru Íslendingar að kaupa upp landið. ÍSLENDINGAR þessi auma kotungaþjóð sem lifði bara á mygluðu korni og kúamykju á meðan Danir reistu hallir og skófluðu í sig hunangsskinku og smurbrauði. Íslendingar sem ekki hefðu orðið neitt annað en úrkynjaður brúnrottukynstofn ef ekki hefði verið fyrir dönsku menningarbyltinguna. Þeir hafa heldur aldrei fyrirgefið okkur fyrir Danska lagið (Bítlavinafélagið). Já, karmað getur svo sannarlega bitið mann í rassinn. Ég hafði bara ekki hugmynd um að ég væri svona mikil ógn. Ég tek þessu sem miklu hrósi og vonast eftir Fálkaorðunni á næsta ári. Ó Guðs vors lands, Ó lands vors Guð.....

1 Comments:
sjæks hvað mín er háfleyg þarna og djúp!! :)
Skrifa ummæli
<< Home