Now that´s the way to do business :)
Já nú er ég komin af 3 daga brjálaðri Vestnorden törn þar sem ég og Gudrun atvinnumálafulltrúi kynntum Húnaþing vestra í gríð og erg. Auðvitað leið ekki ein kaupstefna án þess að ég kæmi mér í vandræði hehe...hér kemur sagan:
Á þriðjudagskvöldið vvar 650 manna galaveisla í Gullhömrum í Grafarholti. Þar sátum við 5 Íslendingar á borði ásamt 3 Áströlum (ein kona og tveir menn), danskri konu og á endanum voru Pólverjar. Alma vinkona var deitið mitt. Eftir að hafa borðað yfir okkur og spjallað við fólkið ákváðum við Alma að fara haim (kl. ca 23:00). Þegar við erum staðnar upp snýr danska konan sér að okkur og segir:
Dönsk kona: You Icelanders are always working, I´m sure you are on your way to your second or third job now.
Hrabbý viðskiptakona: Yes ofcourse we are, we are poledancers.
Þegar hér kom við sögu varð ungi sæti Ástralinn sem sat hinum megin við borðið mjög skrítinn á svipinn. Hann hallaði sér yfir borðið til mín og sagði:
Ungur sætur Ástrali: Excuse me, did you just say you were poledancers?
Hrabbý viðskiptakona: Yes it gives very good tips.
Ungur sætur Ástrali (glottandi): Did you just say you had very good tits? (lítur svo á barminn á mér og kinkar viðurkennandi kolli).
Hrabbý viðskiptakona (lætur ekki slá sig út af laginu): Yes ofcourse I have good tits. Nice meeting you all :)
Á kaupstefnunni morguninn eftir gekk hann svo framhjá básnum hjá mér og brosti afskaplega fallega (meira að segja soldið dónalega) til mín.
Ef þetta lýsir ekki ungri konu á framabraut þá veit ég ekki hvað gerir það :)

1 Comments:
Heyr heyr, you go girl... :)
Skrifa ummæli
<< Home