Þá er ég komin aftur heim frá rollueyjum. Ég skrifaði alveg svakalega flott rollueyjablogg á föstudaginn en svo gufaði það upp, þannig að ég fór í fýlu og hef ekki snert bloggið mitt síðan, fyrr en nú. Ég reyni aftur:
Eins og þið vitið líklegast tókum við Haddi Norrænu til Rolleyja eftir að Haddi vann far fyrir 2 manneskjur og bíl í leik á Rás2. Þetta var náttúrulega tækifæri sem við gátum ekki hafnað svo við drifum okkur af stað. Haddi minn...sem er nota bene sjóveikasti maður í heimi...stóð sig eins og hetja á leiðinni út, þó hetjan væri í koju nærri því allan tímann. Hann ældi allavega ekki og það er nú alveg nýjung þegar að kemur að Haraldi og sjóferðum :) Ég hef hins vegar aldrei fundið til sjóveiki en ég verð nú samt að viðurkenna að mér hefur aaaaalveg liðið betur. Við vorum á ódýrasta farrými sem þýðir að við sváfum í kynjaskiptum klefum með fólki sem við þekkjum ekki neitt. Haddi var heppinn og lenti á þessum eiturhressa Íslendingi sem mokaði í hann bjór hægri vinstri. Ég hins vegar lenti á hrotudýri alheimsins sem kom í veg fyrir að ég svæfi meira en klukkutíma. Við komumst samt heil á höldnu til útlandsins kl. 5 að staðartíma algjörlega svört af þreytu. Í Þórshöfn var ekkert opið nema eitt lítið kaffihús svo við ákváðum að reyna að lukkuna og keyra bara af stað. Við komumst til Klakksvíkur þar sem við sofnuðum svefni hinnar réttlátu á bílastæðinu bak við sundlaugina. Þar sváfum við til kl. 10 en þá opnaði Tourist Information í Klakksvík. Þar redduðum við okkur æðislegu gömlu húsi yfir helgina í nyrsta þorpi Rollueyja, Viðareiði (borið fram Víjarauji.
Í Viðareiði var eins og maður væri kominn allavega 50 ár aftur í tímann. Þar vöppuðu rollur um göturnar en kýr og hestar voru í görðunum, stundum líka hænur, gæsir og endur. Fyrir utan gluggann hjá okkur stóð gamall maður og sló með orfi og ljá og á blettunum í kring rakaði fólk hey með hrífum og hengdi á sérstakar þurrkgirðingar. Sérlegur leiðsögumaður okkar um þorpið var hundur nágrannans sem fylgdi okkur hvert fótmál með annaðhvort bolta eða stein í kjaftinum.
Frá Viðareyði tókum við svo dagsferðir um nærliggjandi eyjar en Rollueyjar eru þeim undrum búnar að það tekur þig aldrei meira en rétt rúman klukkutíma að keyra á milli fjarlægustu staða (þeirra sem vegasamband er til á annað borð).
Þriðju nóttina vorum við í Gjóvg (borið fram Gjeggv) sem er afskaplega fallegur bær nyrst á Eysturoy. En fyrr um daginn fórum við og heimsóttum hann Hákun kunningja minn í Leirvík. Hann lóðsaði okkur um svæðið og gaf okkur svo alfæreyskt skerpukjötslæri í nesti. Skerpukjötið var mjög gott og við náðum meira að segja að smygla áfgangnum heim...ussssss :)
Síðustu 2 næsturnar vorum við svo í Þórshöfn. Við sáum auðvitað margt skrítið og í ferðinni sem ég man bara engan veginn núna. Við komumst m.a. að því að Rollur í rollueyjum tala hvorki meira né minna en að minnska kosti þrjú tungumál auk færeysku og það er nú ekkert smáræði. Ég fann líka besta bjór í heimi en hann heitir Black Sheep og er framleiddur af Föroya Bjór. Rollueyjar hétu líka örugglega Putaland áður en þær fengu núverandi nafn. Það er rosalega fallegt í Færeyjum....og ég man ekki meir í bili.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home