miðvikudagur, nóvember 01, 2006

Excuse me madam!


Innrásin er byrjuð! Rétt áðan hringdi í mig ungur maður sem kynnti sig sem Johnny nokkurn Logan og spurði mig í mikilli einlægni if I was interested in stocks and shares. Mér leið eins og mér hafi verið kippt inn í upphafsatriði Dalalífs þar sem Þór Magnússon og Daníel Ólafsson eru að taka við matarpöntunum í eldhúsinu og búa til skarkala með eldhúsáhöldum til að skapa rétta andrúmsloftið. Annað hvort hefur hann Johnny vinur minn Logan verið staddur á kóræfingu ásláttarhljóðfærafélagsins, eða skrifstofan hans er aaaaaaaaaaagalega bissí. Þvílík og önnur eins læti.

Ekki nóg með það heldur talaði hann Johnny Logan með afskaplega undarlegum hreim, svolítið eins og Frakki sem hefur drukkið of mikið af rússneskum vodka og óvart endað í gagnbangpartýi með 10 bikerleðurhommum.

Sem Eurovison aðdáandi nr. allavega 12 get ég þó allavega verið montin af því að írska tröllið sjálfur Johnny Logan, hafi hringt í mig í vinnuna í dag. Þetta var þó heldur frábrugðið fantasíunni minni um hann, en þar birtist hann nakinn í dyrunum hjá mér með guinnesskönnu á höfðinu og syngur HOOOOLD ME NOW, DON´T CRY, DON'T SAY A WORD JUUUUUUUUUUUUUUUST HOLD ME NOW...................

En maður fær víst ekki allt sem maður vill :)

11 Comments:

At 1:37 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hrafnhildur. Ein spurning. Voru ledurhommarnir i rasslausum buxum? Thad er thad sem skiptir mestu mali.

 
At 1:39 e.h., Blogger Hrabbý said...

Mig minnir að 3 þeirra hafi verið í rasslausum buxum því ég sá böttplöggin standa út í loftið. 4 voru í s.k. alklæðnaði og restin var ekki í neinu.

 
At 1:41 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Jahá, það er greinilega ekki mikil framtíð í að vera söngvar í Írlandi. En leðurbuxurnar eru áreiðanlega mjög flottar ;)

 
At 2:07 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Fr Yr. Eg er bara hreinlega ekki sattur vid thad ad vera meinad ad vera med sodaskap a thessari sidu. Ordid a gotunni er ad thu sert ekki fyndin er thad satt?

 
At 2:10 e.h., Blogger Hrabbý said...

Dear Mr. Anonymous/a.k.a Svenni!

Ég veit ekki hvaðan þú færð þínar upplýsingar, en ég fagna innilega öllum dónaskap sem á þessa síðu ratar...svo lengi sem það eru ekki persónulegar móðganir :).

Allar sögur um minnkandi skopskyn mitt eru stórlega ýktar, en ég bendi á að það dimmir óðum á Íslandi og púkinn minn er að vakna.

 
At 2:14 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Sko goda eg taeki thvi sem personulegri modgun ef enginn vildi modga mig personulega.

Vardandi rasslausu buxurnar, hvort heldur thu ad thaer faeru mer betur i svortu eda brunu?

 
At 2:27 e.h., Blogger Hrabbý said...

Kæri hr. Anonymous!

Ég held að brúnn sé pottþétt þinn litur í rasslausu. Þú ert svo hvítur og pervisinn og þú yrðir eins og liðið lík í svörtu :) loveya

 
At 4:59 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Er kor aefing i kvold eda er henni frestad vegna sundnamskeidsins?

 
At 9:33 f.h., Blogger Hrabbý said...

Í kvöld er sundkóranámskeið...alveg glænýtt konsept sem nýtur vaxandi vinsælda.

 
At 10:21 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Þú ert bara bestust :)

 
At 9:44 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Held nú að guiness kollan hafi verið einhvers staðar annars staðar en á kollinum á Johny Logan þegar þessi færsla varð til:)

Gott að sjá að þú ert ekki alveg hætt að vera fyndin

Kveðja frá Köben
Hallfríður

 

Skrifa ummæli

<< Home