miðvikudagur, apríl 18, 2007

Pólitík

Það hefur ekki farið framhjá neinum að alþingiskosningar eru á næsta leiti. Það er sama hvaða útvarpsstöð maður reynir í sakleysi sínu að hlusta á, allsstaðar eru pólitíkusar að ræða helstu baráttumálin. Leiðinlegast finnst mér að hlusta á fólk sem virðist ekki geta komið frá sér setningu án þess að troða orðum eins og „hérna" og „sko“á milli annars hvers orðs, og svo þeir sem að eru húkked á aukahljóðunum „ehhhhh...ahhhhh...ööööööö". Er ekki lágmark að fólk geti talað sómasamlega án þess að gera mann geðveikan? Það getur vel verið að þetta fólk hafi margt fram að færa, en eftir 27. hérnað og 41. öööööið þá er athyglin mín bara fokin og það eina sem ég get hugsað um er hversu afskaplega þetta fer í taugarnar á mér. Getið þið ímyndað ykkur að sitja á alþingisfundi með svona ræðumanni? Ræða sem vanalega tæki 10 mínútur væri orðnar 45 mínútur vegna aukahljóða. Mikið er ég fegin að vera ekki alþingismaður.