



Afmæli hjá múttu!
Á laugardaginn hélt mamma upp á fimmtugsafmælið sitt með pompi og prakt í Víðihlíð. Það mættu um 130 gestir á svæðið og gæddu sér á dýrindismat og veislan tókst rosalega vel. Sveitungar og ættingjar reiddu fram hvert skemmtiatriðið á fætur öðru sem snérust öll meira og minna um að gera grín að mömmu gömlu (og pabba auðvitað líka í leiðinni). Við systkynin suðum saman leikrit í 5 þáttum sem fékk nafnið "Dæli Sigrún" og gerði stormandi lukku. Við hlógum sjálf svo mikið að við ætluðum varla að komast í gegnum æfingarnar, en sýningin gekk ágætlega þrátt fyrir skamman æfingatíma. Sveitungarnir settu líka upp mjög skemmtilegan leikþátt um gömlu hjónin og tilhugalífið þeirra. Í þessu stórkostlegu leikverk þurfti náttúrulega búninga og því höfðum við systkynin stolist öðru hvoru í fataskápinn hjá gömlu hjónunum, stolið þaðan einni og einni flík án þess að mikið bæri á og keyrt með þær á næstu bæi. Veislan var í einu orði sagt FRÁBÆR og ég held að mammsa gamla hafi skemmt sér alveg konunglega. Læt hér fylgja nokkrar myndir :) Þar má m.a. sjá þegar að ég afhendi henni sérsaumaða svuntu með innbyggðum typpaupptakara!



