föstudagur, apríl 25, 2008

Og hvar ertu nú?
Vá ég var einu sinni fyndin. Ég eyddi kvöldinu í að lesa allar gamlar færslur á blogginu mínu...vá hvað ég get verið rugluð..og fyndin :) Aðallega fyndin náttúrulega. Hvert fór bloggandinn eiginlega? Nú geri ég ekki annað en að birta myndir af barninu mínu, alveg hætt að vera fyndin. Ég verð að reyna að grafa snillinginn upp aftur...hún hlýtur að liggja í leyni einhversstaðar.

miðvikudagur, apríl 23, 2008

Tásur
Tásur eru ótrúlegt fyrirbæri, sérstaklega þegar að maður er næstum því 5 mánaða og nýbúinn að fatta að maður er með svona sniðugt dótarí. Það er sérstaklega skemmtilegt að rífa í tærnar og syngja hátt og snjallt (mamman heldur að þetta sé þjóðsöngurinn en er ekki alveg viss). Svo er náttúrulega bráðnauðsynlegt að vekja bæði pabba og mömmu kl. 6.30 í tásutalningu til að vera nú viss um að ekkert hafi týnst í svefninum.



Hér eru svo nokkrar myndir í viðbót af tásukerlingunni :)



Alveg í kúlinu!

Sæt með pabba


Ekstrím klósöpp! (ótrúlega lík Kristjönu frænku þarna)


Önnur tásumynd

miðvikudagur, apríl 09, 2008


4 mánaða!



Nú er skvísan orðin 4 mánaða gömul og gott betur. Hún er alltaf hress og kát og alveg svakalega dugleg stelpa :). Hjá foreldrunum er allt við það sama, þ.e. húsbygging á fullu, en það er von á smiðunum fljótlega til að klæða slotið að utan.