mánudagur, júlí 31, 2006

Á ég að trúa þessu?

Á ég að trúa því að aðeins 2 manneskjur hafi eitthvað að segja um kúkapistilinn minn? Eruð þið alveg steindauð???? Eða bara hætt að lesa?

miðvikudagur, júlí 26, 2006

Fyrir Svenna!

Hér á eftir fer efni sem gæti hneykslað einhverja dygga lesendur. Málið er bara það að hann Svenni félagi er alltaf að bitcha yfir því að ég skrifi ekki nógu oft og nógu djúsí pistla. Hér kemur einn bara fyrir þig Svenni beibí (restina af ykkur bið ég afsökunar á orðbragðinu ;) ):

Það er ekkert sem kitlar mann meira í görnina en að safna í einn góðan lortara. Ég tala nú ekki um þegar að maður er búinn að vera heilan dag í glampandi sólskini upp á fjöllum að njóta náttúrunnar. Í stað þess að sleppa kvikindinu lausu í náttúrunni, notar maður iðravöðvana við að hnoða því saman og geyma vel og lengi. Sveittar og klístraðar rasskinnar sem hafa nuddast saman á göngu allan daginn eru góð mótstaða við kúlúskítinn sem safnast upp hægt og rólega. Ef maður borðar mikið af berjum í fjallaferðinni getur orðið heljarinnar áskorun að halda kúlunni inni, enda minnir hún kannski meira á trénaðan rabarbaragraut en mjúkan kúlúskít. Ef maður hefur safnað allan daginn geta síðustu skrefin heim orðið hreint út sagt kvalafull, en það breytist nú allt þegar að maður sest á keramikk skálina og hleypir kvikindinu út. Besta leiðin er að taka sér góðan tíma og leyfa hringvöðvanum að kreista kúluna í stórar pulsur og sleppa þeim svo í vatnið einni og einni. Sumir segja að þeir sem færastir eru í þessari list geti látið ytri enda pulsunnar snerta vatnsflötinn áður en klippt er á hana með hringvöðvanum. Hér skiptir stærðin nefnilega máli! Sjálfri hefur mér ekki tekist þetta ennþá, en ég hef þó æft mig mjög samviskusamlega í nær 9 ár, eða allt frá því að ég kynntist Shitmaster Svenna. Mikilvægt er að athuga vel breidd lagna á viðkomandi losunarstað áður en losun fer fram til að koma í veg fyrir stíflur (ha? Svenni ha?. Því er nauðsynlegt að haga stærð hverrar pulsu eftir breidd lagna.

Ekki er ólíklegt að eftir pulsugerð sem þessa sé göngulag sumra manna skringilegt,og séu jafnvel taldir samkynhneigðir, en það er fórn sem menn færa stoltir við aðstæður sem þessar. Það er ekkert karlmannlegra en pulsaður kúluskítur! Hafið góðar hægðir :)

þriðjudagur, júlí 25, 2006

Allt á sullumbulli!

Já nú er allt að komast á sullumbull aftur eftir skrítnar vikur. Við erum búin að senda teikningar af húsinu út í tilboðsgerð og nú tínast tilboðin inn eitt af öðru. Það kostar hellings péééninga að byggja hús, nú þarf maður að fara að blikka bankann og Íbúðalánasjóð með öllum tilfallandi augum.

Um næstu helgi ætlum við að fara á Franska daga á Fáskrúðsfirði og endurnýja kynni okkar af Austurlandinu. Ég hlakka alveg svakalega til að fara, alveg eins og lítill krakki að bíða eftir jólunum. Líður svolítið eins og ég sé að fara "heim", sko "hitt heim". Ég ætla sko að djamma upp á gamla mátann og verða alveg hringlandi vitlaus..enda er það sko bara alveg leyfilegt þegar að maður er í útlöndum.

24. ágúst ætlum við svo að skella okkur til Færeyja með Norrænu. Það verður alveg svaaaaaakalega gaman og við hlökkum mikið til líka. Semsagt...hellingur að hlakka til á næstunni. Svo er hún Alma mín komin heim líka ... sem er nú bara tilefni í partý út af fyrir sig ;)

þriðjudagur, júlí 18, 2006

Gott frí!

Síðustu helgi tókum við hjónakornin okkur frí og fórum norður í Eyjafjörð þar sem við tékkuðum okkur inn á sveitahótel. Á laugardeginum fórum við út í Hrísey, sem var rosalega gaman. Svona eyjamenning er alltaf mjög spennandi, manni líður hálfpartinn eins og maður sé kominn til útlanda. Í Hrísey fórum við í labbitúr um eyna, skoðuðum okkur um í þorpinu og enduðum svo á því að fá okkur gúrmei mat á Brekkunni (humar og nautasteik..mmmmm). Þetta var mjög skemmtilegt, ég mæli hiklaust með Hrísey :)

Síðan fórum við og fengum okkur Brynjuís, skoðuðum nýju hverfin á Akureyri og enduðum svo í kvöldmat á Bautanum með Önnu Kristínu, Óla og stelpunum. Það var afskaplega gott að ná aðeins að slappa af eftir mikið amstur og álag, en nú tekur hversdagsleikinn við....allavega fram að Frönskum dögum :)

laugardagur, júlí 08, 2006

Að selja!

Jæja þá erum við að selja íbúðina, hún var búin að vera á sölu í rúman mánuð svo að þetta var ekkert gífurlega löng bið. Ég held að við séum að selja á háréttum tíma og erum bara nokkuð ánægð með verðið (ca 50% verðmætaaukning frá kaupum). Nú erum við farin að grafa nefin niður í spekúleringar um hvernig hús við ætlum að byggja. Haddi er þegar búinn að teikna upp grunnmyndina og nú þurfum við bara að sjá hverjir gera besta tilboðið. Við erum að spá í svona kanadísku einingahúsi, en við þurfum að sjá hvernig tilboðin koma út og reikna svo líka út hvað það myndi kosta okkur að byggja það allt frá grunni sjálf. Ef einhverjir sem lesa þetta hafa eitthvað vit á einingahúsamarkaðnum (við hverja á að skipa og hverja ekki) þá mega þeir gjarnan skilja eftir ráðleggingar hérna. Ég veit að ég get snúið mér til Hrannar og Svenna á Norðfirði því þau eru á fullu að byggja sitt eigið núna. Við erum orðin rosalega spennt. Það verður þvílíkur munur að fá að innrétta heilt hús eftir sínu höfði :) Ég vona bara að okkur farist það vel úr hendi, við erum nú soddans argasnillingar.

miðvikudagur, júlí 05, 2006

Í gær fylgdum við Kela tengdapabba til grafar. Jarðarförin var mjög falleg en að sama skapi rosalega erfið. Keli var klettur í lífi svo afskaplega margra og brotthvarf hans er því mörgum mjög erfitt. Hann var einn af þessum mönnum sem lætur verkin tala frekar en orðin, ótrúlega duglegur með einstaklega fallegt hjartalag. Þó svo hann sé nú farinn frá okkur lifir minningin í hjörtum okkar allra. Það á eftir að taka okkur langan tíma að átta okkur á því að hann sé í raun og veru farinn.