Hundar og karrý!
Já ég hef komist að því á óyggjandi hátt að hundar og karrý fara ekki saman, í hversu litlu mæli sem það er. Fyrsti hluti þessarar rannsóknar fór fram fyrir u.þ.b. 2 vikum síðan þegar að viðfangið (Åsa) fékk afgang að fiskibollum með karrýsósu (náttúrulega allt í þágu vísindanna). Daginn eftir brunuðum við á Egilsstaði að ná í Hrönn og þegar við lögðum af stað aftur heim (u.þ.b. 24 tímum eftir að karrýát átti sér stað), fékk hundurinn þessa svakalegu drullu í bílinn. Við gátum ekki annað en hent hundalakinu og öllu því tilheyrandi þar sem að ég hafði nú ekki lyst á að setja þetta gums í þvottavélina. Nú! Tveimur vikum síðar (upp á dag) var viðfanginu gefinn afgangur af rækjusalati (með karrýi) ca. 1 dl. Kl. nákvæmlega 5:23 í morgun vakna ég við grunsamleg búkhljóð framan af gangi. Þegar að ég kíki fram er hundurinn búinn að drulla svakalegri hrúgu fyrir framan stigann og er á fullu að æla á teppið sitt. Ég þurfti semsagt að draga fram tusku, poka, hanska, flísatangir og öll tilheyrandi rannsóknargögn til þess að þrífa upp úrganginn. Þessu safnaði ég að sjálfsögðu öllu saman í poka sem að bíður frekari skoðunar hjá sérfræðingum við Háskóla Íslands. Ég tel hlut mínum í tilrauninni formlega lokið og ætla mér ALDREI aftur að gefa hundinum mínum neitt sem hefur komist í snertingu við framandi austurlensk krydd.
Hrabbý van der Scheizespützel
