þriðjudagur, mars 28, 2006

Fórnarlamb öfundsjúkra Dana!

Þegar ég loggaði mig inn á msn-ið í morgun voru allir contactarnir mínir horfnir af yfirborði jarðar, já HORFNIR segi ég! Ég fór að velta fyrir mér hverjir myndu hagnast mest á því að þurrka út contactlistann minn. Það var sama hvernig ég snéri málinu, niðurstaðan var alltaf sú sama, þ.e.:

Það er nokkuð ljóst að Danir hafa frétt af velgengni minni og hafið mótvægisaðgerðir.

Hvað annað gæti þetta verið? Ekki neitt! Það er nefnilega ekki nóg að Danir séu að berjast við fuglaflensu heldur herjar víruspest á seli í Norðursjó svo þeir eiga engan sjens greyin. Fyrir utan þetta eru Íslendingar að kaupa upp landið. ÍSLENDINGAR þessi auma kotungaþjóð sem lifði bara á mygluðu korni og kúamykju á meðan Danir reistu hallir og skófluðu í sig hunangsskinku og smurbrauði. Íslendingar sem ekki hefðu orðið neitt annað en úrkynjaður brúnrottukynstofn ef ekki hefði verið fyrir dönsku menningarbyltinguna. Þeir hafa heldur aldrei fyrirgefið okkur fyrir Danska lagið (Bítlavinafélagið). Já, karmað getur svo sannarlega bitið mann í rassinn. Ég hafði bara ekki hugmynd um að ég væri svona mikil ógn. Ég tek þessu sem miklu hrósi og vonast eftir Fálkaorðunni á næsta ári. Ó Guðs vors lands, Ó lands vors Guð.....

fimmtudagur, mars 23, 2006

Á leið útlendis

Þar sem ég hef ekki farið til útlanda í þó nokkurn tíma ætla ég mér að bæta það upp dagana 4. apríl - 7. maí. Þá er dagskráin eftirfarandi:

4. - 9. apríl: Fundur í Kajaoki í Finnlandi
13. - 17. apríl: Páskachill hjá Vilmari og Önnu í Gautaborg
4. - 7. maí. Stelpuferð til Brussel með Döggu (að heimsækja Ölmu auðvitað)

Þar að auki verð ég að vinna á Ferðatorgi 2006 dagana 30. mars - 2. apríl svo ég sé ekki fram á að komast heim í nær hálfan mánuð. EN mér leiðist þetta nú alls ekki neitt :) Það er gaman að fá tækifæri til að skoða staða sem maður hefði annars aldrei séð, sbr. Kalajoki ....whatyousay?

Svo er náttúrulega brúðkaupsferðin eftir. Það eru 55 % líkur á að hún verði farin til Togo þar sem Njörður frændi stjórnar hjálparstarfi. Svo er fundur á Grænlandi í ágúst. Ég er orðin útlendis.

mánudagur, mars 20, 2006

I can´t marry you Bobby, I´m your sister!!

Sápuóperur! Hvar værum við án þeirra? Þvílík dramatík sem lífið í United States of Bandaríkin hlýtur að vera. Aumingja Brook, sem er ekki bara búin að sofa hjá Eric (pabbanum) og tveimur sonum hans, er nú ólétt eftir tengdason sinn! Aumingja konan að lenda í þessu. Svo við tölum nú ekki um Beth sem er búin að vera ástfangin af Lujack, Alan Michael og honum þarna what´shisname. Í Ástralíu höfum við svo náttúrulega hann Bobby sem er búinn að lofa að sofa hjá Lyn, Susan og Lynette, er svo alltaf næstum því búinn að koma upp um sig. Og svo aumingja Steffy og Max sem eru búin að ganga í gegnum ófrjósemi, krabbamein, morðákærur, skapofsavandamál, steranotkun, hjartaáföll og ég veit ekki hvað og hvað í sinni fjölskyldu.

Ég held ég hafi þó aldrei lifað mig eins mikið inn í neina þætti og Bráðavaktina. Eftir þáttinn þar sem brjálaður sjúklingur réðst á Carter og Lucy með hnífi, þar sem Carter slasaðist lífshættulega en Lucy dó, fannst mér ég hafa misst bestu vinkonu mína. Afhverju Lucy??? Why god why I ask you!? Svo náttúrulega dó Mark Green úr krabbameini sem kostaði langan sorgartíma, þá íhugaði ég alvarlega að ganga í svörtu og taka mér frí í vinnunni.

miðvikudagur, mars 15, 2006

Pikköpplínur

Um helgina var ég að dansa við ungan mann. Hann hallaði sér að mér og sagði: E-mailið mitt er komduaðríðapunkturis og horfði svo á mig með glíju í augum. Hann lét ekki stoppa sig að kærastan hans dansaði aðeins nokkra metra frá okkur. Svona eru ungir menn nú hugrakkir nú til dags og ekki eru eldri neitt betri. Ég veit ekki hvað þetta er með lofaða og gifta menn. Á balli á Fáskrúðsfirði vatt sér að mér einn maður um fimmtugt og gaf mér gsm númerið sitt. Sagðist elska konur. Ef maðurinn yrði vondur við mig væri bara að hringja. Konan hans hafði skroppið á klósettið. HVAÐ ER AÐ?????

Áhugi manna á spikuðum vorkópum er greinilega vakinn. Framtíð Selasetursins getur ekki verið annað en björt :)

mánudagur, mars 06, 2006

Búmm sjaka búmm búmm búmm...og nú tala ég Micra!

Á laugardaginn brunuðu Haddi minn og Kiddi bróðir suður til Reykjavíkur og versluðu eitt stykki frúarbíl fyrir yours trúlí. Það er ekki amarlegt að vera ung kona á framabraut. Ég hef aldrei áður átt bíl sem er yngri en 10 ára og nú brosi ég allan hringinn. Hér er svo mynd af dúllunni minni :)




Er hún ekki sæt?

Hrabbý van der Micralover