Ef ég bara hefði pung!

Hver vill ekki hafa pung? Maður getur gert svo margt með honum, sem við hinir punglausu getum ekki. Hvað? Já það er von að þú spyrjir greyið mitt.
1) Væri t.d. ekki miklu auðveldar að vera í ræktinni ef að maður myndi bara pungsvitna í staðinn fyrir að fá þetta allt í augun? Safna þessu bara í tankana þarna niðri og losa svo á næstu frjósemishátíð. Þess vegna vilja karlar alltaf stunda heimaleikfimi eins og ofvirkar kanínur...þeir svitna svo mikið í daglega lífinu þið skiljið.
2) Ég hef lengi dáðst að mönnum sem geta dregið augað í pung. Það er eitthvað svo afbrigðilegt...svona rétt eins og maður sem getur sleikt á sér olnbogann. Hvernig þeir koma auganu í punginn og hvaðan þetta auka auga kemur, er mér alveg hulin ráðgáta en ég held að þetta eigi sér lífeðlisfræðilegar skýringar. Mín kenning er sú að þeir menn sem of oft hafa dregið augað í punginn eigi erfiðara með að ná því upp aftur. Ég held að sama skapi að augað í pungnum hljóti að sjá miklu betur en augun í andlitinu sem gæti útskýrt þörf þessara manna fyrir að skoða andlit annarra með pungnum.
3) Hvað með þá sem eru alltaf að punga út einhverju? Það eru nú meiri ósköpin sem hægt er að geyma í sekknum! Ekki nóg með að hann fyllist af svita reglulega heldur virðist hann hafa sama eiginleika og gæsin sem verpti gulleggjunum! Money, money, money. Launamunur kynjanna er ekkert svo svakalegur, munurinn á ráðstöfunarfé útskýrist einfaldlega með þessu eina ótrúlega líffæri...pungnum. Ekki get ég farið í Elko og eggjastokkað út pening fyrir nýrri fartölvu? Þetta segir sig náttúrulega sjálft.
Heill sé þér pungur!